Man. City er ekki hætt að kaupa leikmenn í sumar þótt að Haaland sé í húsi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. maí 2022 15:31 Pep Guardiola, þjálfari Manchester City, telur sig þurfa að styrkja liðið fyrir komandi leiktíð Getty/Craig Mercer Manchester City mun styrkja leikmannahóp sinn enn frekar í sumar og það verður því ekki bara norski framherjinn Erling Haaland sem bætist í hópinn.
ESPN hefur heimildir fyrir því að forráðamenn City ætli að kaupa fleiri leikmenn því stefnan sé sett á að finna bæði miðjumann og bakvörð. Reynsluboltinn Fernandinho kveður félagið í sumar og fer heim til Brasilíu. Þá er vinstri bakvörðurinn Benjamin Mendy í banni hjá félaginu á meðan hann er fyrir rétti vegna nauðgana. Mendy er ekki líklegur til að snúa aftur. Það er líka vitað af áhuga á Oleksandr Zinchenko sem gæti því yfirgefið félagið. City býst við því að Gabriel Jesus biðji um leyfi að vera seldur frá félaginu og bæði Arsenal og Juventus hafa áhuga á honum. Guardiola mun ekki standa í vegi fyrir honum enda fyllir Haaland í það skarð. City gekk líka frá kaupum á argentínska framherjanum Julian Alvarez frá River Plate í janúar en framtíð hans hjá félaginu er enn óráðin. Þýski miðjumaðurinn Ilkay Gundogan verður líklegast áfram en hans samningur rennur út 2023. Raheem Sterling er líka að renna út á samning næsta sumar en hann og félagið munu ræða saman í sumar. Sterling hefur verið orðaður við bæði Arsenal og Tottenham Hotspur.
Enski boltinn Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Má mæta í bláum gallabuxum: „Skáksambandið gerir bara það sem Magnus biður um“ Sport Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Fótbolti Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Sjá meira