Veiði

Vorveiðin komin á Veiða.is

Karl Lúðvíksson skrifar
Sjóbirtingsveiðin hefst 1. apíl
Sjóbirtingsveiðin hefst 1. apíl

Veiðileyfavefurinn Veida.is er fullur af skemmtilegum möguleikum fyrir vorveiði og nú þegar aðeins 31 dagur er til stefnu áður en veiðin hefst er um að gera að skoða hvað er í boði.

Það er gott framboð af vorveiðileyfum hjá Veida.is og líklega fáir sem státa af jafn mörfum spennandi veiðisvæðum til að starta tímabilinu. Eitt af þeim er Bíldsfell í Soginu en þar er oft hægt að gera flotta veiði á fyrstu dögunum.  Önnur spennandi svæði eru til dæmis Útey við Hólaá en Hólaá er kannski best þekkt sem bleikjuá en á vorin er það urriðinn sem er að taka agnið. Galtalækur er líka oft sterkur á vorinn og það getur Brúará verið líka.

Önnur spennandi svæði eru til dæmis Hlíðarvatn, Svartá í Skagafirði, Fossá og Torfastaðir í Soginu. Það svæði sem er á listanum hjá Veida.is og er í miklu uppáhaldi hjá undirrituðum er samt Hraun í Ölfusi. Þetta er alls ekki auðvelt svæði en þegar það gefur þá líka gefur það vel. Þarna gætir flóð sog fjöru og besti tíminn er að frá lágfjöru í aðfalli alveg þangað til flóði er náð. Það þarf ekki að vaða út í enda tekurinn sjóbirtingurinn oft alveg upp við land.






×