Þríeyki United missir af leiknum við úthvíldan Jóhann Sindri Sverrisson skrifar 29. desember 2021 13:00 Bruno Fernandes, Paul Pogba og Victor Lindelöf verða ekki með gegn Burnley en David de Gea verður væntanlega í markinu. Getty/Ash Donelon Manchester United verður án að minnsta kosti þriggja leikmanna þegar liðið tekur á móti Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum í Burnley í síðasta leik sínum á þessu ári.
United og Burnley mætast annað kvöld í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Á heimasíðu United er staðfest að Svíinn Victor Lindelöf missi af þeim leik, rétt eins og 1-1 jafnteflinu við Newcastle á mánudagskvöld, vegna kórónuveirusmits. United spilaði ekki leik í rúmar tvær vikur vegna hópsmits hjá félaginu en Lindelöf er eini leikmaðurinn sem ljóst er að missir af leiknum á morgun vegna smits. Bruno Fernandes fékk gult spjald í leiknum við Newcastle og verður í banni á morgun. Þá er Paul Pogba enn að komast í gang eftir meiðsli sín í læri og verður ekki með. Góðu fréttirnar fyrir United eru þær að Raphael Varane var með gegn Newcastle og er því klár í slaginn á ný eftir meiðsli, líkt og Edinson Cavani sem kom inn á í leiknum og skoraði. Jóhann og félagar ættu að vera úthvíldir því þeir hafa ekki spilað leik síðan 12. desember, þar sem leikjum þeirra við Aston Villa og Everton var frestað.
Enski boltinn Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Goðsögn fallin frá Enski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn „Ég elska peninga“ Sport Fleiri fréttir Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin Sjá meira