Glamúr og gull í nýrri skartgripalínu Hlínar Reykdal Ása Ninna Pétursdóttir skrifar 8. desember 2021 15:44 Skartgripahönnuðurinn Hlín Reykdal leggur áherslu á klassík og glamúr í nýrri línu sinni Young. Dóra Dúna „Línan er fyrir alla sem fíla að bera skart, þó að línan heiti Young er hún ekki endilega bara fyrir yngri kynslóðina,“ segir listakonan Hlín Reykdal í samtali við Vísi.
Hálsmen getur einnig verið armband Ný skartgripalína Hlín Reykdal, sem ber nafnið Young, er að mörgu leyti ólík fyrri línum hennar en suma skartgripina er hægt að nota á marga vegu. „Sem dæmi getur hálsmen orðið að armbandi með því að vefja því um úlnliðinn. Þú ræður hversu stutt eða síð menin eru og sum getur þú haft tvöföld eða einföld. Mikið af eyrnalokkum eru í línunni sem henta einnig vel þeim sem hafa fleiri en tvö göt í eyrunum.“ Keðjurnar eru gullhúðaðar með 18 karata gulli. Íris Stefáns Línan einkennist af 18 karata gullhúðuðum keðjum, svörtum steinum ásamt platínu húðuðum handgerðum keðjum. Íslensk hönnun í jólapakkann Litadýrð hefur einkennt hönnun Hlínar en notast hún við gylltan, silfur og svart. Þó svo að línan beri nafnið Young segir hún skartgripina þó vera fyrir alla þá sem elski að bera fallegt skart, algjörlega óháð aldri. Finnur þú fyrir því að fólk vilji kaupa íslenska hönnun í jólapakkann? „Já, heldur betur. Við finnum vel fyrir því hér í Kiosk Grandagarði en við seljum aðeins íslenska fatahönnun og skartgripi. Þó svo að línan beri nafnið Young segir Hlín skartgripina ætlaða öllum þeim sem elski að vera með skart, óháð aldri. Íris Stefáns Það hefur verið mikil gróska í íslenskri hönnun almennt undanfarin ár, fjölbreytni og fagmennska. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því ég byrjaði í bransanum 2009,“ segir Hlín að lokum. Hér fyrir neðan er hægt að sjá fleiri myndir af skartgripalínunni Young. Dóra Dúna Dóra Dúna Dóra Dúna Dóra Dúna Dóra Dúna
Tíska og hönnun Tengdar fréttir „Þessi sjúkdómur er miskunnarlaus“ „Pabbi minn lést úr heilakrabbameini árið 2013 eftir mjög stutta baráttu. Þessi sjúkdómur miskunnarlaus og ég hvet alla til að fara til læknis ef minnsti grunur vaknar,“ segir hönnuðurinn Hlín Reykdal í samtali við Vísi. 28. september 2021 13:31 Tískudrottningar landsins sameinuðust í afmælisboði Verslunin Kiosk Granda varð eins árs á dögunum og slógu hönnuðirnir Anita Hirlekar, Eygló, Hlín Reykdal, Magnea Einars og Helga Lilja upp ótrúlega flottri afmælisveislu. 23. september 2021 09:02 „Við lesum hvor aðra vel og vinnum eins og vel smurt tannhjól“ Hlín Reykdal og fatamerkið skaparinn sýna saman línu á HönnunarMars sem sameinar stefnu skartgripa- og fatahönnuðar á óvæntan og skemmtilegan hátt. Þær fara nýjar leiðir og fengu svo Dóru Dúnu ljósmyndara til að fanga sýn sem hefur myndast í þeirra þróun. 22. maí 2021 07:00 Mest lesið Deilur Bríetar og Pálma smitast yfir á síðu Zöru Larsson Lífið Simmi og Hugi taka sér pásu: „Það er hagsmunaárekstur“ Lífið Chappell Roan elskar Fischersund Tíska og hönnun Ingibjörg Sólrún steig trylltan dans Lífið Stjörnulífið: Á rassinum með ref Lífið „Þrjátíu og eitt ár síðan stuðboltinn Bakkus sagði mér upp“ Lífið Skotið á hús Rihönnu í Beverly Hills Lífið Þolir ekki þegar kærastinn talar um tilfinningar Lífið Hver er maðurinn? Lífið Þriggja daga leikhús fáránleikans Lífið Fleiri fréttir Chappell Roan elskar Fischersund Tískan vopnið í keppni gegn krabbameini Slakur með 62 milljón króna hálsmen Björk glæsileg í indverskri hönnun Segir nei takk við jakkafatapésana Best klæddu pör sögunnar Björn skellti sér strax í sokkana Afhjúpa þemað fyrir tískuveislu ársins Dorrit ánægð með demantsklædda Kylie Furðulegar þýðingar netverslunar: „Smjaðandi silúett“ og „skjaldbökunnarbrún rammi“ Gullin regla að sýna ekki allt hold í einu Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Sjá meira
„Þessi sjúkdómur er miskunnarlaus“ „Pabbi minn lést úr heilakrabbameini árið 2013 eftir mjög stutta baráttu. Þessi sjúkdómur miskunnarlaus og ég hvet alla til að fara til læknis ef minnsti grunur vaknar,“ segir hönnuðurinn Hlín Reykdal í samtali við Vísi. 28. september 2021 13:31
Tískudrottningar landsins sameinuðust í afmælisboði Verslunin Kiosk Granda varð eins árs á dögunum og slógu hönnuðirnir Anita Hirlekar, Eygló, Hlín Reykdal, Magnea Einars og Helga Lilja upp ótrúlega flottri afmælisveislu. 23. september 2021 09:02
„Við lesum hvor aðra vel og vinnum eins og vel smurt tannhjól“ Hlín Reykdal og fatamerkið skaparinn sýna saman línu á HönnunarMars sem sameinar stefnu skartgripa- og fatahönnuðar á óvæntan og skemmtilegan hátt. Þær fara nýjar leiðir og fengu svo Dóru Dúnu ljósmyndara til að fanga sýn sem hefur myndast í þeirra þróun. 22. maí 2021 07:00