„Líður ekki of illa með að segja að United þurfi betri stjóra“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. október 2021 07:23 Það var skiljanlega þungt yfir Ole Gunnar Solskjær á hliðarlínunni í gær. getty/Martin Rickett Jamie Carragher segir augljóst að Manchester United þurfi betri knattspyrnustjóra en Ole Gunnar Solskjær.
Gamla liðið hans Carraghers, Liverpool, rúllaði yfir United, 0-5, á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í gær og pressan á Solskjær hefur sennilega ekki verið meiri síðan hann tók við Rauðu djöflunum í árslok 2018. Í Monday Night Football á Sky Sports í síðustu viku sagði Carragher að Solskjær væri ekki nógu góður fyrir United. Og hann endurtók það eftir leikinn í gær. „Ég var ekki að reyna að vera gagnrýninn á Solskjær. Hann hefur gert góða hluti hingað til. En ef United ætlar að keppa við [Jürgen] Klopp, [Pep] Guardiola og [Thomas] Tuchel, Liverpool, Manchester City og Chelsea þurfa þeir betri stjóra,“ sagði Carragher. „Mér er illa við að stjórar eigi að vera reknir en þegar við tölum um United sem lið finnst okkur í lagi að segja að Fred sé ekki nógu góður, [Scott] McTominay sé ekki nógu góður og þeir þurfi nýjan miðjumann. Mér líður ekki of illa með að segja að United þurfi betri stjóra. Solskjær er ekki stjóri fyrir United þegar þú vilt taka næsta skref. Og Solskjær verður aldrei Klopp, Guardiola eða Tuchel.“ Eftir stórtapið í gær er United í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Enski boltinn Mest lesið Tólf Íslandsmet féllu á Íslandsmótinu í sundi Sport Markaregn í enska boltanum í dag Fótbolti Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Fótbolti Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Fótbolti Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Fótbolti Norris með aðra höndina á titlinum Formúla 1 Öruggur sigur City Enski boltinn Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Íslenski boltinn Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Fótbolti Vonast til að Barcelona geti stöðvað sigurgöngu Lyon Fótbolti Fleiri fréttir Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Sanngjarn heimasigur Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Boro bannar Edwards að stýra liðinu í dag Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Þakklátur Klopp fyrir ríginn: „Ég sakna hans“ Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Fantasýn: Er að hugsa um að taka fyrirliðabandið af Haaland Slot segir að Isak sé byrjaður aftur að æfa en bað um eitt Fantasýn: Sölvi Tryggva með leynivopn Fótboltaleikur í beinni á TikTok í fyrsta sinn Góður í að þekkja stórstjörnur sem börn Segir að Man United sé ekki að búa til Harlem Globetrotters-lið Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans „Mér finnst þetta ekki leiðinlegur fótbolti“ Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Fékk faðmlag frá konu Diogo Jota í miðju maraþoni Ógnaði leikmanni Tottenham með byssu út á götu David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Viðtal Kjartans við Carrick: „Þolinmæðin minni og dómharkan meiri í hverri viku“ Sjáðu glæsilegan einleik Ndiayes og jöfnunarmarkið frá Xhaka Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Sjá meira