Stjörnumenn spila sinn fyrsta deildarleik í 24 daga í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. október 2021 15:31 Patrekur Jóhannesson stýrði Stjörnuliðinu síðast í Olís deildinni í júní þegar liðið vann Hauka á Ásvöllum en datt samt úr leik í úrslitakeppninni. Hér er Stjörnubekkurinn í þeim leik. Vísir/Elín Björg Stjarnan er eitt af þremur liðum í Olís deild karla í handbolta með fullt hús stiga. Ólíkt hinum tveimur þá hefur Stjarnan aðeins spilað einn leik. Garðbæingar tvöfalda þá tölu í Hafnarfirðinum í kvöld.
Garðbæingar spila sinn fyrsta deildarleik í meira en þrjár vikur í kvöld þegar þeir skella sér yfir til nágrannasveitafélagsins. Haukar taka á móti Stjörnunni á Ásvöllum í stórleik þriðju umferðar. Leikurinn hefst klukkan 19.40 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Það var mikið um löng hlé á Olís deild karla í fyrravetur vegna kórónuveirunnar en Stjörnumenn hafa líka þurft að bíða mjög lengi eftir deildarleik númer tvö á þessari leiktíð. Það er ekki oft sem taplaus lið eru bara í áttunda sæti í deildinni sinni en það er skortur á leikjum miklu frekar en skortur á stigum sem kallar á þá stöðu Stjörnumanna. Stjörnuliðið hefur aðeins spilað einn deildarleik og sá leikur fór fram 17. september síðastliðinn. Stjarnan fagnaði þar 36-35 sigri í æsispennandi leik. Síðan eru liðnir 24 dagar. Patrekur Jóhannesson, þjálfari liðsins, tók úr leikbann í þessum leik í Mosfellsbæ eftir að hafa fengið útilokun í bikarleik átta dögum fyrr. Patrekur er því í kvöld að stýra sínum fyrsta leik í Olís deildinni síðan í undanúrslitaeinvíginu á móti Haukum 11. júní. Þá vann Stjarnan 32-29 sigur á heimamönnum en datt samt út úr úrslitakeppninni. Stjarnan hefur spilað bikarleik í millitíðinni en liðið tapaði á móti Fram í undanúrslitum Coca Cola bikarsins. Leikurinn verður eins og áður sagði sýndur beint á Stöð 2 Sport í kvöld og strax á eftir mun síðan Seinni bylgjan gera upp alla þriðju umferðina.
Olís-deild karla Stjarnan Haukar Mest lesið Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Sjá meira