Viaplay sýnir allar Indycar keppnir Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 26. september 2021 07:01 Felix Rosenqvist frá Svíþjóð, ekur #7 Arrow McLaren SP Chevrolet, bíl sínum. Nordic Entertainment Group (NENT Group) hefur útvíkkað réttindi sín til sýninga á NTT INDYCAR SERIES til ársins 2024. Streymisveitan Viaplay, sem er í eigu NENT Group, heldur sýningum frá helstu kappaksturskeppnum Norður-Ameríku áfram á Íslandi sem og á hinum Norðurlöndunum og víðar í Evrópu. Sænsku stjörnubílstjórarnir Marcus Ericsson – sem hyggst taka feril sinn í INDYCAR SERIES upp á næsta stig eftir titilbaráttuna 2021 – og Felix Rosenqvist hafa nú þegar verið tilkynntir sem þátttakendur við ráslínuna á nýju tímabili sem hefst í febrúar 2022.
Tímabili INDYCAR SERIES árið 2021 lýkur á sunnudaginn með Acura Grand Prix-kappakstrinum á Long Beach í Los Angeles, en það hefur markað tímamót fyrir Marcus Ericsson (Chip Ganassi Racing) sem innbyrti sinn fyrsta Indy-sigur í Detroit í júní og fylgdi honum eftir með öðrum sigri í Nashville í ágúst. Felix Rosenqvist (Arrow McLaren SP) er kominn aftur á beinu brautina eftir dramatískan árekstur um mitt tímabilið og hefur fullan hug á að sanna sig sem þann ökuþór sem útnefningin sem nýliði ársins 2019 gaf fyrirheit um, og eins þegar skákborðsmunstinu var veifað fyrir hann á Winsconsin Road America-brautinni 2020. Marcus Ericsson ekur Chip Ganassi Racing bíl sínum. INDYCAR SERIES-tímabilið stendur frá febrúar fram í september og býður upp á afar fjölbreyttar brautir, vegi, götur og hringakstra, þar meðtalinn hinn goðsagnakennda Indianapolis 500 sem þekktur er um heim allan sem „stórkostlegasta sjónarspil kappakstursíþróttanna“. Tímabilið 2022 verður hið 111. í opinberri Ameríkukeppni aurhlífalausra bíla.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent