Þrefalt toppsæti hjá Volvo vörubílum frá Velti Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 6. september 2021 07:00 Veltisteymið. Volvo vörubílar eru þeir vinsælustu á Íslandi árið 2021 og hefur salan aukist meira en 240% það sem af er ári og trónir Volvo í þremur toppsætum á árinu. Volvo vörubílar eru mest seldir á heildarmarkaði vörubíla, mest seldir í flokki vörubíla yfir 16 tonn og Volvo FH16 er mest selda einstaka gerðin.
Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Velti. Heildarmarkaður vörubíla er 92 bílar miðað við 62 bíla á sama tíma í fyrra. Markaðurinn er því að vaxa ríflega 48% en sala Volvo vörubíla vex mun meira og því eykst hlutdeild Volvo umtalsvert. Heildarmarkaður vörubíla. Uppitími skiptir eigendur Volvo vörubíla mestu máli Ástæðan fyrir framúrskarandi árangri Volvo vörubíla er samspil frábærrar aðstöðu í vel tækjum búinni þjónustumiðstöð Veltis á Hádegismóum 8, einstaklega gott aðgengi fyrir stóra bíla, gæðavörumerki sem er frábært í endursölu og einstök samvinna starfsmanna allra deilda Veltis til að tryggja framúrskarandi þjónustu með allt á einum stað. Starfsmenn og stjórnendur Veltis vita að uppitími atvinnubíla og atvinnutækja er lykilatriði fyrir rekstraraðila og allt starf Veltis hverfist um að tryggja háan uppitíma. Tryggja að atvinnubíllinn og atvinnutækið sé stöðugt í vinnu að afla tekna. Uppitími ræðst af fjölmörgum þáttum t.d. gæðum bíla og tækja, fáanleika varahluta, verkstæðisaðstöðu og tækjabúnaðar verkstæðis, reynslu og þjálfun starfsmanna, góðri verkstýringu á verkstæði, stuðningi birgja í tæknimálum og hnökralausum ferlum sem studdir eru af öflugu upplýsingatæknikerfi ásamt reynslumiklu og vel þjálfuðu, lausnamiðuðu teymi starfsmanna. Veltisteymið hefur unnið sleitulaust undanfarin þrjú ár að tryggja sífellt betri uppitíma og mun halda því áfram af enn meiri metnaði.
Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent