„Þurfum að líta í spegil“ Valur Páll Eiríksson skrifar 28. ágúst 2021 14:30 Aubameyang og félagar í Arsenal þurfa að taka sig á að hans sögn. Robbie Jay Barratt - AMA/Getty Images Pierre-Emerick Aubameyang, fyrirliði Arsenal, segir leikmenn liðsins þurfa að fara í naflaskoðun eftir 5-0 tap fyrir Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Arsenal hefur ekki skorað mark á leiktíðinni og er á botni deildarinnar án stiga.
Arsenal sá aldrei til sólar gegn Manchester City í dag þar sem liðið lenti 2-0 undir þegar minna en stundarfjórðungur var liðinn af leiknum. Granit Xhaka fékk þá rautt spjald í fyrri hálfleiknum áður en City bætti þremur mörkum við og vann öruggan 5-0 sigur á Arsenal-liði sem átti ekkert skot á mark í leiknum og var aðeins 19% með boltann. „Það þarf að taka áhættur og vera hugrakkur með boltann, sem við gerðum ekki í dag,“ sagði Aubameyang eftir leik. „Eftir rauða spjaldið var þetta allt annar leikur, en eins og ég segi, þetta er ekki nóg og allir þurfa að stíga upp, við þurfum að líta í spegil, vinna úr þessu sem lið og standa saman. Það er eina leiðin fram á við.“ „Ég held að við þurfum að eiga samtal, leikmennirnir, okkar á milli. Ég held að það sé mikilvægt því við erum Arsenal og við þurfum stolt. Við þurfum að ræða málin hreinskilnislega og hækka ránna,“ sagði Aubameyang. Fyrir leik dagsins hafði Arsenal tapað 2-0 fyrir bæði Brentford og Chelsea í deildinni. Liðið hefur því enn ekki skorað mark og er stigalaust á botni deildarinnar með markatöluna 0-9.
Enski boltinn Mest lesið Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Íslenski boltinn Öruggur sigur City Enski boltinn Snævar setti heimsmet Sport Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Enski boltinn „Er ekki alveg viss um hvar hann hefur lært körfubolta“ Körfubolti Maddie Sutton í sögubækurnar í fámennum hóp Körfubolti Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Fótbolti Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Enski boltinn Hvetur Napólí til að sækja óánægðan Mainoo Fótbolti Dagskráin í dag: Stórleikur í enska og NFL á fullt Sport Fleiri fréttir Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Sanngjarn heimasigur Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Boro bannar Edwards að stýra liðinu í dag Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Þakklátur Klopp fyrir ríginn: „Ég sakna hans“ Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Fantasýn: Er að hugsa um að taka fyrirliðabandið af Haaland Slot segir að Isak sé byrjaður aftur að æfa en bað um eitt Fantasýn: Sölvi Tryggva með leynivopn Fótboltaleikur í beinni á TikTok í fyrsta sinn Góður í að þekkja stórstjörnur sem börn Segir að Man United sé ekki að búa til Harlem Globetrotters-lið Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans „Mér finnst þetta ekki leiðinlegur fótbolti“ Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Fékk faðmlag frá konu Diogo Jota í miðju maraþoni Ógnaði leikmanni Tottenham með byssu út á götu David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Viðtal Kjartans við Carrick: „Þolinmæðin minni og dómharkan meiri í hverri viku“ Sjáðu glæsilegan einleik Ndiayes og jöfnunarmarkið frá Xhaka Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Sjá meira