Í fyrsta sinn skoraði markvörður mark ársins hjá Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júní 2021 09:31 Alisson Becker fagnar markinu með ofurkátum félögum sínum í Liverpool liðinu. EPA-EFE/Laurence Griffiths Markið sem var mikill örlagavaldur fyrir Liverpool á tímabilinu hefur nú verið kosið mark ársins hjá enska úrvalsdeildarfélaginu. Sigurmark brasilíska markvarðarins Alisson Becker á 95. mínútu á móti West Bromwich Albion var valið mark ársins í kosningu á vegum félagsins. Alisson var ekki aðeins fyrsti markvörðurinn til að skora fyrir félagið hann var sá fyrsti til eiga mark ársins. Mark Alisson var vissulega mjög flott skallamark eftir hornspyrnu en mikilvægið var ómælanlegt þegar kom að baráttunni um sæti í Meistaradeildinni. watch on YouTube Alisson Becker ákvað að hlaupa fram enda var leiktíminn að renna út og tvö dýrmæt stig að renna Liverpool liðinu úr greipum. Trent Alexander-Arnold tók hornspyrnuna frá vinstri, Alisson Becker stökk hæst allra og skallaði boltann óverjandi í markið. Alisson Becker hafði mikla yfirburði í kosningunni því hann fékk 65 prósent atkvæðanna. Liverpool vann leikinn en hann var hluti af fimm leikja sigurgöngu liðsins til að enda tímabilið. Það skilaði Liverpool mönnum þriðja sæti í deildinni og sæti í Meistaradeildinni tímabilið 2021-22. Mohamed Salah varð ekki aðeins í öðru sæti því hann átti öll hin fjögur mörkin á topp fimm listanum. Mörk ársins hjá Liverpool: 1. Alisson Becker á móti West Bromwich Albion 2. Mohamed Salah á móti Leeds United 3. Mohamed Salah á móti West Ham United 4. Mohamed Salah á móti Crystal Palace 5. Mohamed Salah á móti Atalanta BC 6. Mohamed Salah á móti Everton 7. Trent Alexander-Arnold á móti Aston Villa 8. Mohamed Salah á móti Leicester City Another excuse to watch nearly 6 minutes of Ali s absolutely ridiculous goal? . pic.twitter.com/q47qhZ1MHY— Liverpool FC (@LFC) June 2, 2021 Enski boltinn Mest lesið Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Fleiri fréttir Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Sjá meira
Sigurmark brasilíska markvarðarins Alisson Becker á 95. mínútu á móti West Bromwich Albion var valið mark ársins í kosningu á vegum félagsins. Alisson var ekki aðeins fyrsti markvörðurinn til að skora fyrir félagið hann var sá fyrsti til eiga mark ársins. Mark Alisson var vissulega mjög flott skallamark eftir hornspyrnu en mikilvægið var ómælanlegt þegar kom að baráttunni um sæti í Meistaradeildinni. watch on YouTube Alisson Becker ákvað að hlaupa fram enda var leiktíminn að renna út og tvö dýrmæt stig að renna Liverpool liðinu úr greipum. Trent Alexander-Arnold tók hornspyrnuna frá vinstri, Alisson Becker stökk hæst allra og skallaði boltann óverjandi í markið. Alisson Becker hafði mikla yfirburði í kosningunni því hann fékk 65 prósent atkvæðanna. Liverpool vann leikinn en hann var hluti af fimm leikja sigurgöngu liðsins til að enda tímabilið. Það skilaði Liverpool mönnum þriðja sæti í deildinni og sæti í Meistaradeildinni tímabilið 2021-22. Mohamed Salah varð ekki aðeins í öðru sæti því hann átti öll hin fjögur mörkin á topp fimm listanum. Mörk ársins hjá Liverpool: 1. Alisson Becker á móti West Bromwich Albion 2. Mohamed Salah á móti Leeds United 3. Mohamed Salah á móti West Ham United 4. Mohamed Salah á móti Crystal Palace 5. Mohamed Salah á móti Atalanta BC 6. Mohamed Salah á móti Everton 7. Trent Alexander-Arnold á móti Aston Villa 8. Mohamed Salah á móti Leicester City Another excuse to watch nearly 6 minutes of Ali s absolutely ridiculous goal? . pic.twitter.com/q47qhZ1MHY— Liverpool FC (@LFC) June 2, 2021
Mörk ársins hjá Liverpool: 1. Alisson Becker á móti West Bromwich Albion 2. Mohamed Salah á móti Leeds United 3. Mohamed Salah á móti West Ham United 4. Mohamed Salah á móti Crystal Palace 5. Mohamed Salah á móti Atalanta BC 6. Mohamed Salah á móti Everton 7. Trent Alexander-Arnold á móti Aston Villa 8. Mohamed Salah á móti Leicester City
Enski boltinn Mest lesið Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Fleiri fréttir Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Sjá meira