Aron Rafn aftur heim í Hauka Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. maí 2021 18:20 Aron Rafn Eðvarðsson snýr aftur til Hauka í sumar eftir átta ára fjarveru. getty/Friso Gentsch Markvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson kemur heim í sumar og gengur í raðir Hauka. Hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Aron er uppalinn hjá Haukum og lék með liðinu til 2013 þegar hann fór til Eskilstuna Guif í Svíþjóð. Hann lék með Álaborg í Danmörku 2015-16 og Bietigheim í Þýskalandi 2016-17. Aron kom heim sumarið 2017 og gekk í raðir ÍBV. Hann varð þrefaldur meistari með Eyjaliðinu áður en hann hélt aftur til Þýskalands og samdi við Hamburg. Hann lék með liðinu í tvö ár en gekk svo aftur í raðir Bietigheim í sumar. „Ég er spenntur að koma aftur heim í Hauka eftir 8 ára fjarveru. Búið að vera skemmtilegt ferðalag hjá mér og glaður að koma aftur heim á Ásvelli og spila fyrir Hauka,“ sagði Aron í fréttatilkynningu frá Haukum. Hjá Haukum leysir Aron Björgvin Pál Gústavsson af hólmi en hann fer til Vals eftir tímabilið. Fyrir hjá Haukum er Andri Sigmarsson Scheving og þá snýr Stefán Huldar Stefánsson aftur til félagsins eftir lánsdvöl hjá Gróttu. Aron, sem er 31 árs, hefur leikið 84 landsleiki og fór með íslenska landsliðinu á fimm stórmót. Aron varð Íslandsmeistari með Haukum 2008, 2009 og 2010, bikarmeistari 2010 og 2012 og deildarmeistari 2009, 2010, 2012 og 2013. Haukar eru þegar búnir að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í Olís-deildinni. Þeir mæta botnliði ÍR í lokaumferðinni á morgun. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Olís-deild karla Haukar Mest lesið Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Sjá meira
Aron er uppalinn hjá Haukum og lék með liðinu til 2013 þegar hann fór til Eskilstuna Guif í Svíþjóð. Hann lék með Álaborg í Danmörku 2015-16 og Bietigheim í Þýskalandi 2016-17. Aron kom heim sumarið 2017 og gekk í raðir ÍBV. Hann varð þrefaldur meistari með Eyjaliðinu áður en hann hélt aftur til Þýskalands og samdi við Hamburg. Hann lék með liðinu í tvö ár en gekk svo aftur í raðir Bietigheim í sumar. „Ég er spenntur að koma aftur heim í Hauka eftir 8 ára fjarveru. Búið að vera skemmtilegt ferðalag hjá mér og glaður að koma aftur heim á Ásvelli og spila fyrir Hauka,“ sagði Aron í fréttatilkynningu frá Haukum. Hjá Haukum leysir Aron Björgvin Pál Gústavsson af hólmi en hann fer til Vals eftir tímabilið. Fyrir hjá Haukum er Andri Sigmarsson Scheving og þá snýr Stefán Huldar Stefánsson aftur til félagsins eftir lánsdvöl hjá Gróttu. Aron, sem er 31 árs, hefur leikið 84 landsleiki og fór með íslenska landsliðinu á fimm stórmót. Aron varð Íslandsmeistari með Haukum 2008, 2009 og 2010, bikarmeistari 2010 og 2012 og deildarmeistari 2009, 2010, 2012 og 2013. Haukar eru þegar búnir að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í Olís-deildinni. Þeir mæta botnliði ÍR í lokaumferðinni á morgun. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olís-deild karla Haukar Mest lesið Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Sjá meira