„Lét eins og að Mané stundaði dýfingar“ Sindri Sverrisson skrifar 7. apríl 2021 08:02 Sadio Mané féll við þegar Lucas Vazquez fór af þunga utan í hann í aðdraganda annars marks Real Madrid í gærkvöld. Getty/Oscar J. Barroso Jürgen Klopp sagði Liverpool-menn ekki hafa átt meira skilið en 3-1 tap gegn Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld. Hann furðaði sig þó á störfum dómarans Felix Brych og sagði hann hljóta að hafa eitthvað perónulegt á móti Sadio Mané. Marco Asensio kom Real í 2-0 á 36. mínútu en í aðdraganda marksins virtist sem brotið hefði verið á Sadio Mané á hinum enda vallarins. Klopp vildi meina að dómarinn hefði verið ósanngjarn í garð Mané í öllum leiknum. „Varðandi atvikið með Sadio – ég skil ekki það sem dómarinn gerði í kvöld. Fyrir mér var þetta eitthvað persónulegt því hann tók þannig á atvikinu með Sadio, sem var augljóst brot, að hann lét eins og að hann {Mané] stundaði dýfingar eða eitthvað. Frá því augnabliki var það þannig að í hvert skipti sem Sadio fór í jörðina þá fékk hann ekkert dæmt. Það er ekki réttlátt,“ sagði Klopp, sem vatt sér að Brych eftir leikinn. „Þetta er það sem ég sagði við hann eftir leikinn, að mér hefði þótt hann ósanngjarn í garð Sadio. Það breytir samt engu. Hann tapaði ekki leiknum. Við vorum ekki nógu góðir til að ná betri úrslitum en á svona stundum þarftu að hafa „allt í lagi“ dómara. Það hefði verið nóg,“ sagði Klopp. Seinni leikur Liverpool og Real Madrid verður á Anfield á miðvikudaginn eftir viku.
Marco Asensio kom Real í 2-0 á 36. mínútu en í aðdraganda marksins virtist sem brotið hefði verið á Sadio Mané á hinum enda vallarins. Klopp vildi meina að dómarinn hefði verið ósanngjarn í garð Mané í öllum leiknum. „Varðandi atvikið með Sadio – ég skil ekki það sem dómarinn gerði í kvöld. Fyrir mér var þetta eitthvað persónulegt því hann tók þannig á atvikinu með Sadio, sem var augljóst brot, að hann lét eins og að hann {Mané] stundaði dýfingar eða eitthvað. Frá því augnabliki var það þannig að í hvert skipti sem Sadio fór í jörðina þá fékk hann ekkert dæmt. Það er ekki réttlátt,“ sagði Klopp, sem vatt sér að Brych eftir leikinn. „Þetta er það sem ég sagði við hann eftir leikinn, að mér hefði þótt hann ósanngjarn í garð Sadio. Það breytir samt engu. Hann tapaði ekki leiknum. Við vorum ekki nógu góðir til að ná betri úrslitum en á svona stundum þarftu að hafa „allt í lagi“ dómara. Það hefði verið nóg,“ sagði Klopp. Seinni leikur Liverpool og Real Madrid verður á Anfield á miðvikudaginn eftir viku. Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Enski boltinn Mest lesið Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Úr Bestu heim í Hauka Íslenski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Handbolti „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Sjá meira