Þrjár konur kosnar í stjórn SVFR Karl Lúðvíksson skrifar 26. febrúar 2021 11:52 Aðalfundur SVFR var haldinn í gærkvöldi og eitt að aðalmálum fundarins var að kjósa um þrjú sæti af sex til stjórnar.
Aðalfundur SVFR var haldinn í gærkvöldi og eitt að aðalmálum fundarins var að kjósa um þrjú sæti af sex til stjórnar. Í framboði voru fimm aðilar og þegar atkvæði í þessum fyrstu rafrænu kosningum félagsins voru talin voru það þrjár konur sem voru kosnar inn í stjórn félagsins. Staða stjórnar er þá á þann veg að stjórn skipa þrjár konur og þrír menn auk formanns sem er Jón Þór Ólason en hann var sjálfkjörinn Formaður félagsins til eins árs í viðbót. Ragnheiður Thorsteinsson var kjörinn aftur í stjórn en nýju konurnar eru Lára Kristjánsdóttir og Helga Jónsdóttir. Marteinn Jónasson og Ólafur Finnbogason sitjandi stjórnarmaður sem gaf kost á sér áfram náðu ekki kjöri. Það vakti nokkra athygli að Ólafur var með fæst atkvæði.
Stangveiði Mest lesið Vefsala SVFR opnuð Veiði Tilkynning frá SVFR vegna Hítará Veiði Líflegt í vötnunum Veiði Gæsaveiðin er búin að vera góð Veiði Vikulegar veiðitölur úr laxveiðiánum Veiði Hvað á rjúpa að hanga lengi? Veiði 9 laxar á land í Hítará Veiði Árlega byssusýningin haldin um helgina Veiði Nýtt Sportveiðiblað komið út Veiði Sex laxar á land á fyrsta degi í Laxá í Leirársveit Veiði