Þú átt aldrei nóg af Peacock Karl Lúðvíksson skrifar 19. janúar 2021 08:11 Þrjár útgáfur af flugunni Peacock Nú sitja veiðimenn landsins yfir hnýtingar græjunum og undirbúa sig fyrir komandi veiðisumar en það styttist hratt í það.
Nú sitja veiðimenn landsins yfir hnýtingar græjunum og undirbúa sig fyrir komandi veiðisumar en það styttist hratt í það. Það er oft rætt milli veiðimanna hvaða flugur eru nauðsynlegar í boxið og flest árin höfum við skoðað hvaða flugur við teljum skyldueign í laxa og silungaboxin. Við ætlum ekkert að breyta út af vananum þetta árið og ætlum reglulega fram á vor að minna ykkur sem hnýtið flugur á hvaða flugur eru nauðsynlegar í boxið. Við skulum byrja á þeirri flugu sem allir silungsveiðimenn þurfa að eiga. Ef þú átt hana ekki, þarftu hana, ef þú hefur aldrei heyrt um hana ertu nýbyrjaður í veiði og þá skulum við aðeins fræði þig um þetta undravopn. Flugan Peacock er líklega ein einfaldasta silungaflugan sem þú getur hnýtt. Einfaldasta útgáfan af henni eru bara nokkrar fanir af páfuglsfjöður vafðar þétt utan um flugukrók. Og það er allt og sumt. Svo eru til útgáfur af henni sem er gott að eiga. Kúluhaus, rauður haus, kúluhaus með nettum rauðum hálsi, bæta við smá skeggi, kannski pínu skott og svona mætti lengi halda áfram. Þetta er líklega sú fluga sem gefur hvað best í allri vatnaveiði á íslandi og er yfirleitt veitt nokkuð djúpt og dregin löturhægt inn. Stærðir 12-16# eru mest notaðar en útgáfurnar af henni endalausar.
Stangveiði Mest lesið Nýr vildarklúbbur hjá Lax-Á hefur göngu sína Veiði Töluvert af laxi í Soginu Veiði Lax kominn á efra svæðið í Selá Veiði Margar skytturnar í góðri veiði í morgun Veiði Dágott gengi hjá lokahollinu í Þverá Veiði RISE fluguveiði kvikmyndahátið hefst í dag Veiði Yfir 500 bleikjur í Norðfjarðará Veiði Hljótum að geta sett í einn eða tvo Veiði Besti tíminn laus í Soginu Veiði Eru veiðimenn að upplifa sömu hörmungar og 1984? Veiði