Nýr Mercedes-Benz Maybach S-Class frumsýndur Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 19. desember 2020 07:01 Mercedes-Banz Maybach S-Class. Nýr Mercedes-Benz Maybach S-Class var frumsýndur á dögunum og er þetta líklega mesta lúxuskerra sem fyrirfinnst í heiminum í dag. Bíllinn er gríðarlega vel búinn þægindum og tækninýjungum og má segja að lúxus í bifreið sé skilgreindur upp á nýtt með þessum nýja bíl, segir í fréttatilkynningu frá Öskju.
Síðan Mercedes-Benz Maybach S-Class kom fyrst á markað árið 2015 hafa rúm 60 þúsund eintök af bílnum verið seld víðs vegar um heiminn. Á síðasta ári voru alls 12 þúsund Mercedes-Maybach S-Class seldir og hafa aldrei fleiri eintök selst á einu ári. Hjólhaf Maybach er 180 mm lengra en Mercedes-Benz S-Class. Bíllinn er búinn miklum lúxus og m.a. er boðið upp á kálfahvíldarnudd og upphitun á hálsi og öxlum. Fimm skjáir eru í bílnum, þar á meðal 12,3 tommu mælaborðsskjár og 12,8 tommu OLED margmiðlunarskjár með snertiskjá. Þess til viðbótar er hver og einn skjár stillanlegur eftir höfði viðkomandi farþega. Bíllinn er með nýrri kynslóð MBUX afþreyingakerfisins sem gerir t.d farþegum í aftursætum kleift að taka myndsímtöl með Zoom í gengum 11,6” snertiskjá sem búinn er háskerpumyndavél. Alls eru 30 hátalarar í innanrýminu sem er með 4D surround kerfi. Allar upplýsingar sem máli skipta við aksturinn koma í sjónlínu ökumanns í framrúðuna. Maybach S 580 4MATIC er með 4,0 lítra V-8 vél með tvöfaldri forþjöppu sem skilar 496 hestöflum. Vélin er búin EQ Boost, sem gefur allt að 21 hestöfl til viðbótar ef á þarf að halda. Mercedes-Maybach S-class fer í framleiðslu um mitt næsta ár og það er aldrei að vita nema einn slíkur komi til Íslands.
Mest lesið Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Mannfallið að nálgast tvær milljónir Erlent Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Innlent Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Erlent Svíar líta til kjarnorkuvopna Erlent Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlent Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Innlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent Fleiri fréttir Tesla Cybertruck og Ferrari í Vestmannaeyjagöngum Sjá meira