Fylkir í fjórða Bjarni Bjarnason skrifar 15. október 2020 23:21
Fjórtánda umferð Vodafonedeildarinnar í CS:GO fór fram fyrr í kvöld. Lokaleikur kvöldsins og deildarinn var vonarstjörnurnar í XY gegn stórveldi Fylkis. XY gekk erfiðlega að finna sig í vörninni og festa Fylkismanna skilaði þeim sigri í spennandi leik. XY 11 – 16 Fylkir. Fylkir hóf leikinn að miklum krafti en vörn (counter terrorist) XY stóð af sér sóknirnar fyrstu loturnar. Fylkismenn héldu þó pressunni áfram og með lelillz (Liljar Mar Pétursson) í fararbroddi brutust þeir í gegn. XY reyndu hvað þeir gátu að spyrna við en náðu ekki utan um breiddina í liði Fylkis. Hvað eftir annað var lið Fylkis komið í undirtölu en ítrekað stigu leikmenn þar fram, tóku upp slakan og sneru lotum sér í vil. Var lið Fylkis á bullandi siglingu og með gott forskot í lok fyrri hálfleiks. Staðan í hálfleik XY 4 – 11 Fylkir. Þrátt fyrir að hafa verið á skransinu í fyrri hálfleik hófu XY þann seinni að krafti. Frjálslegt leikskipulag sóknarinnar hentaði XY betur og þar fór brnr (Birnir Clausson) fremstur. Fyrsta lotan vannst að miklu fyrir tilþrif hans en er leið á skaut hann göt á vörn Fylkis með veigamiklum fellum. Þrátt fyrir öflug einstaklingsframtök hjá liðsmönnum XY vó liðsheild Fylkis meira. Er styttist í leikslok og pressan jókst stóðu Fylkismenn þéttir saman. Með vörn sem stóð af sér villtan sóknarleik XY kláraði Fylkir leikinn. Lokastaðan XY 11 – 16 Fylkir. Fylkir kláraði deildina í fjórða sæti og því með miða á stórmeistaramótið. XY hinsvegar halda sínu sæti í deildinni en þurfa að spila sig inn á mótið.
Fylkir Vodafone-deildin Mest lesið Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Fótbolti Liverpool vann risaslaginn Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Fótbolti Þjálfaragoðsögn látin taka pokann sinn: „Ég er undrandi“ Fótbolti Meistararnir lágu á heimavelli Fótbolti Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? Fótbolti Slavia Prag engin fyrirstaða fyrir Arsenal Fótbolti Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Handbolti „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Íslenski boltinn