Guðmundur Ágúst endaði í fimmta sæti á Opna Norður-Írska Ísak Hallmundarson skrifar 6. september 2020 15:15 Guðmundur Ágúst endaði í 5. sæti á Opna Norður-Írska mótinu í golfi. vísir/gva
Guðmundur Ágúst Kristjánsson átti góðu gengi að fagna á Opna Norður-Írska mótinu í golfi, sem er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu. Guðmundur lék alla hringina undir pari vallarins, en völlurinn er par 70. Hann lék samtals á níu höggum undir pari og endaði í 5. sæti á mótinu. Lokahringinn í dag lék Guðmundur á 67 höggum, þremur undir pari, þar sem hann fékk fugl á fyrstu holu, örn á 10. holu og par á öllum hinum holunum. Bandaríkjamaðurinn Tyler Koivisto vann mótið á 12 höggum undir pari, þremur höggum minna en Guðmundur Ágúst. Haraldur Franklín Magnús lék samtals á pari í mótinu og endaði í 33. sæti, en á lokahringnum í dag var hann á þremur höggum undir pari líkt og Guðmundur. Andri Þór Björnsson endaði í 48. sæti á samanlagt tveimur höggum yfir pari. Hér má skoða heildarúrslitin í mótinu.
Golf Mest lesið Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Handbolti Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Ellefu ára strákur verður óvænt hluti af setningarhátíð Ólympíuleikanna Sport „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Handbolti Extraleikarnir: Bannað að bíta og nýtt met í gryfjuhlaupi Sport Sara var lengi lásskjámynd Eyglóar en nú er Eygló á símanum hjá Söru Sport Fær að dansa á leikunum í búningi „minions“ úr Aulinn ég-myndunum Sport James Harden skipt til Cleveland og titillíkur Cavaliers aukast Körfubolti Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Enski boltinn Fleiri fréttir LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira