Óttast um líf barna í Simbabve Heimsljós kynnir 26. febrúar 2020 11:30 Ljósmynd frá Simbabve. Save the Children
Lífsbarátta almennings í Simbabve er komin á það stig að samtökin Barnaheill – Save the Children óttast um líf barna. Samtökin segja að mikill matarskortur í landinu hafi leitt til þess að börn fái almennt einungis eina máltíð á dag og mörg þeirra þurfi að ganga klukkustundum saman til að sækja drykkjarvatn. „Án meiriháttar alþjóðlegrar mannúðaraðstoðar komum við til með að horfa upp á börn deyja eftir því sem fjölskyldur þurfa að leggja harðar að sér til að þrauka,“ segir í tilkynningu frá samtökunum. Að minnsta kosti 7,7 milljónir íbúa landsins, jafnt til bæja og sveita, búa við alvarlegan matarskort, þar af eru 3,8 milljónir sveltandi barna sem þurfi skjótan stuðning. Samkvæmt frétt Save the Children ræða foreldar um að taka börn úr skóla til að vinna eða vegna þess að skólagjöldin eru þeim ofviða. Einnig er rætt um að gefa dætur í hjónaband til efnaðri fjölskyldna. Þá hafa margar fjölskyldur fækkað máltíðum, selt búpeninginn eða aðrar eignir, og sumar hafa tekið sig upp og haldið út í óvissuna til annarra landa. Af hálfu Save the Children er unnið að greiningu á aðstæðum í landinu til að fá enn greinarbetri mynd af stöðunni. Ljóst er þó að vandinn er víðtækur og sá alvarlegasti frá árinu 2008. Ástæðurnar eru af ýmsum toga, mikill fjárskortur ríkisins, ógnvekjandi skuldir, mikið atvinnuleysi og sífellt hækkandi verð á vörum og þjónustu. Þá er verðbólga hvergi í heiminum hærri en í Simbabve. Save the Children hvetja framlagsríki og alþjóðasamfélagið til þess að bregðast strax við bágum aðstæðum íbúa Simbabve áður en þær breytast í neyðarástand.Vefur Barnaheilla Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Simbabve Þróunarsamvinna Mest lesið Fjölskyldufaðir stunginn meðan sonurinn horfði á Innlent Fékk sex milljónum of há laun og neitaði að endurgreiða þau Innlent Þjóðhátíð í Eyjum: Farþegafjöldi í Herjólfi komi á óvart Innlent Vann skemmdir á golfvelli og skildi eftir smokk Innlent Sagði foreldrana líklega hafa dottið í aðdraganda andlátsins Innlent „Manneskja sem er komin á þetta plan hlýtur að vera rökþrota“ Innlent Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa Erlent „Ég upplifi þetta sem mikinn yfirgang og ofbeldi“ Innlent Tollar á vörur frá Íslandi verða 15 prósent samkvæmt forsetatilskipun Erlent Búast við þrumuveðri og vatnavöxtum Innlent