Guardiola veit að Sane fer: Elska hann svo mikið en hann vill fara á nýjar slóðir Sindri Sverrisson skrifar 20. júní 2020 07:00 Leroy Sane var í leikmannahópi Manchester City gegn Arsenal á miðvikudag en kom ekkert við sögu. VÍSIR/GETTY
Þýski knattspyrnumaðurinn Leroy Sane er staðráðinn í að yfirgefa Manchester City og hefur hafnað nokkrum tilboðum frá félaginu. Hann hefur verið orðaður við Bayern München síðustu 12 mánuði. Pep Guardiola, knattspyrnustjóri City, staðfesti það í gær að Sane væri á förum. „Hann vill fara í annað félag. Ég veit ekki hvort það verður í sumar eða næsta sumar þegar að samningur hans rennur út,“ sagði Guardiola á blaðamannafundi. Sane kom til City frá Schalke í Þýskalandi fyrir 37 milljónir punda árið 2016, og skrifaði þá undir samning til fimm ára. Þessi 24 ára gamli kantmaður hefur ekki spilað síðan í ágúst eftir að hafa slitið krossband í hné í leiknum um Samfélagsskjöldinn. Ljóst er að Guardiola vildi halda Sane lengur í Manchester en hann sagði félagið hafa rætt „tvisvar til þrisvar“ sinnum við leikmanninn um nýjan samning. „Þegar við bjóðum leikmanni samning þá er það vegna þess að við viljum hann. Hann er með sérstaka hæfileika. Við viljum leikmenn sem vilja spila fyrir félagið og ná markmiðum. Hann er góður náungi og ég elska hann svo mikið. Ég hef ekkert á móti honum en hann vill feta nýjar slóðir,“ sagði Guardiola.
Enski boltinn Mest lesið Willum mættur fyrstur upp á spítala alla daga Sport Kristján hafði betur gegn Fjallinu og er sterkasti maður Íslands Sport Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Enski boltinn Höfuðhöggin á ferlinum valdi heilabilun Sport Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Hefur enn trú á sjálfum sér: „Finnst fólkið vera á bakvið okkur“ Íslenski boltinn Aðför að forsetanum segir FIFA í harðorðri yfirlýsingu Fótbolti Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Lærisveinar Freys svöruðu með góðum sigri Fótbolti Fleiri fréttir Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Barcelona blandar sér í baráttuna um Rodri Sauð á leikmönnum Arsenal eftir tapið fyrir Betis Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Sjá meira