Fjölnir getur endurheimt sæti sitt í Pepsi Max-deildinni á morgun: „Viljum klára þetta á heimavelli“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. september 2019 19:56
Næstsíðasta umferð Inkasso-deildar karla fer fram á morgun. Hart er barist á toppi og botni deildarinnar. Leikur Fjölnis og Leiknis R. verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Fjölnismönnum dugir jafntefli til að tryggja sér sæti í Pepsi Max-deildinni. Leiknir er í 3. sætinu með 36 stig, fimm stigum á eftir Fjölni og einu stigi á eftir Gróttu sem er í 2. sætinu. Seltirningar mæta botnliði Njarðvíkinga á morgun. „Þetta verður erfiður slagur. Menn hafa verið duglegir að tala okkur upp í sumar en ég hef alltaf sagt að þetta verði barátta fram á lokadag. En helst viljum við klára þetta á morgun. Við eigum heimaleik og ljóst er að eitt stig dugir,“ sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, í samtali við Guðjón Guðmundsson í kvöldfréttum Stöðvar 2. Fjölnismenn hafa verið á toppi Inkasso-deildarinnar í nær allt sumar. Þeir tóku smá dýfu fyrir skemmstu en hafa unnið síðustu tvo leiki sína samtals 13-1. „Við höfum hikstað á leiðinni en lengst af höfum við leitt deildina,“ sagði Ásmundur sem tók við Fjölni eftir að liðið féll úr Pepsi-deildinni í fyrra. Hann kom Fjölni einnig upp í efstu deild 2007 og tvisvar í bikarúrslit (2007 og 2008). Leikirnir í næstsíðustu umferð Inkasso-deildarinnar hefjast allir klukkan 14:00 á morgun.Leikirnir í 21. umferð Inkasso-deildar karla: Fjölnir - Leiknir R. Njarðvík - Grótta Magni - Þróttur R. Fram - Þór Afturelding - Víkingur Ó. Haukar - Keflavík Fréttina í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.Staðan í Inkasso-deild karla.
Inkasso-deildin Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Svona var blaðamannafundur Arnars Fótbolti Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Enski boltinn Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Mál Alberts truflar landsliðið ekki Fótbolti Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Fótbolti Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Foden í stuði gegn Dortmund Fótbolti Davíð Smári tekur við Njarðvík Íslenski boltinn „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Sjá meira