Dramatík á Nesinu og Grótta ekki tapað síðan 24. maí | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. júlí 2019 16:01 Grótta kom til baka gegn Víkingi Ó. vísir/ernir
Óliver Dagur Thorlacius tryggði Gróttu stig gegn Víkingi Ó. í leik liðanna á Seltjarnarnesi í 13. umferð Inkasso-deildar karla í dag. Lokatölur 2-2. Óliver Dagur skoraði jöfnunarmarkið úr vítaspyrnu þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Grótta hefur ekki tapað leik í tæpa tvo mánuði, eða síðan 24. maí. Axel Freyr Harðarson kom Gróttu yfir á 46. mínútu. Fimm mínútum síðar jafnaði Emmanuel Eli Keke fyrir Ólsara. Harley Willard kom gestunum svo yfir úr vítaspyrnu á 71. mínútu. Það virtist ætla að duga Víkingi til sigurs en þeir urðu að gera sér eitt stig að góðu. Mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan.Klippa: Grótta 2-2 Víkingur Ó. Ólsarar eru í 4. sæti deildarinnar með 21 stig. Seltirningar eru í 2. sætinu með 25 stig, fjórum stigum á eftir Fjölnismönnum sem rúlluðu yfir Hauka, 1-5. Þetta var fimmti sigur Fjölnis í síðustu sex leikjum. Ingibergur Kort Sigurðsson skoraði tvö mörk fyrir gestina úr Grafarvoginum og Guðmundur Karl Guðmundsson og Arnór Breki Ásþórsson sitt markið hvor. Þá gerði Oliver Helgi Gíslason sjálfsmark. Arnar Aðalgeirsson skoraði mark Hauka sem eru í 9. sæti deildarinnar með ellefu stig. Rafael Victor skoraði tvö mörk þegar Þróttur R. vann 2-3 sigur á Njarðvík. Sindri Scheving var einnig á skotskónum hjá Þrótturum sem eru í 7. sæti deildarinnar. Ivan Prskalo skoraði bæði mörk Njarðvíkinga sem eru í 10. sæti deildarinnar. Þeir hafa tapað átta af síðustu níu leikjum sínum. Upplýsingar um úrslit og gang mála eru fengnar frá Fótbolta.net.
Inkasso-deildin Mest lesið „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Fótbolti Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Fótbolti Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Fótbolti Böl Börsunga í Belgíu Fótbolti Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Körfubolti „Leyfðum þremur leikmönnum að ganga frá okkur“ Sport Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Enski boltinn Magdeburg skoraði 45 en lærisveinar Guðjóns Vals úr leik Handbolti Nik fær Lindu Líf til Kristianstad Fótbolti Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Körfubolti Fleiri fréttir Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Sjá meira