Stjórnvöld skrifa undir samkomulag við FAO Heimsljós kynnir 22. mars 2019 16:30 María Erla Marelsdóttir skrifstofustjóri þróunarsamvinnu og Árni M. Mathiesen aðstoðarframkvæmdastjóri fiskveiðisviðs hjá FAO. „
Fiskveiðar, bláa hagkerfið og heilbrigð höf eru lykilþættir fyrir Ísland og stefnu okkar í þróunarsamvinnu. Við lítum því á samkomulagið við Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) sem góða leið til þess að styðja heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun,“ segir María Erla Marelsdóttir, sendiherra og skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, sem skrifaði í gær fyrir Íslands hönd undir rammasamning við FAO. Samkvæmt samkomulaginu ætla FAO og Ísland að vinna náið saman að verkefnum sem stuðla að langtímavernd vistkerfa sjávar og felur í sér meðal annars fjárhagslegan og tæknilegan stuðning af Íslands hálfu. Þrír meginþættir samkomulagins eru baráttan gegn ólöglegum fiskveiðum, meðal annars með innleiðingu alþjóðlegs samnings hafnríkja um aðgerðir til að fyrirbyggja, hindra og uppræta ólöglegar, ótilkynntar og eftirlitslausar veiðar; í öðru lagi aðgerðir gegn rusli í höfum, sérstaklega plasti, glötuðum veiðafærum og drauganetum; og í þriðja lagi stuðning við sjóð innan FAO þar sem ein stoðin nefnist ,,Blue growth”. Árni M. Mathiesen aðstoðarframkvæmdastjóri fiskveiðisviðs FAO fagnaði undirritun samningsins og sagði að stofnunin hafi ævinlega átt stuðning Íslands vísan, einkanlega á sviði fiskimála. Samkomulag FAO og Íslands tengist beint fjórtánda heimsmarkmiðinu, um líf í vatni, en einnig öðrum heimsmarkmiðum eins og baráttunni gegn hungri.Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent