Tæplega 60 prósent leikja Pepsi Max-deildarinnar á gervigrasi? Tómas Þór Þórðarson skrifar 13. mars 2019 15:31 Fylkismenn fengu gervigras um mitt sumar í fyrra. vísir/vilhelm
Svo gæti farið að ríflega helmingur liðanna í Pepsi Max-deild karla í fótbolta spili á gervigrasi á næstu leiktíð sem hefst 26. apríl með Reykjavíkurslag Íslandsmeistara Vals og Víkings á Origo-vellinum. Nú þegar er ljóst að helmingur liðanna í deildinni spila sína leiki á gervigrasi og þar af leiðandi verða 66 leikir af 132 eða helmingur allra leikja deildarinnar á gervigrasi. Valur, Stjarnan, Fylkir og HK eru klár með sína velli en Breiðablik og Víkingur eru að koma sér upp gervigrasvelli. Víkingar spila framan af móti á gervigrasvelli Þróttara í Laugardalnum. Nú vilja KA-menn bætast við gervigrashópinn en Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, staðfestir við Fótbolti.net að Akureyrarfélagið vill spila sína heimaleiki á gervigrasinu við KA-heimilið í sumar. KA-menn eru búnir að óska eftir því við KSÍ og Akureyrarbæ að flytja völlinn upp á KA-svæðið en þar þurfa KA-menn að byggja bráðabirgðastúku sem fengi undanþágu í tvö ár. Einnig þurfa þeir að koma upp fjölmiðlaaðstöðu. Þetta vilja gulir gera. Bætist KA í gervigrashópinn verða sjö félög á gervigrasi í sumar og fer fjöldi leikja á gervigrasi upp í 77 sem gerir 58 prósent allra leikja Pepsi Max-deildarinnar. Sé horft aðeins tvö ár aftur í tímann voru aðeins tvö félög með gervigras í efstu deild en það voru Valur og Stjarnan. Þá fóru aðeins 22 leikir fram á gervigrasi eða tæplega 17 prósent.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Íslenski boltinn Öruggur sigur City Enski boltinn Snævar setti heimsmet Sport Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Enski boltinn „Er ekki alveg viss um hvar hann hefur lært körfubolta“ Körfubolti Maddie Sutton í sögubækurnar í fámennum hóp Körfubolti Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Fótbolti Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Enski boltinn Fanney sænskur meistari í fyrstu tilraun Fótbolti Fyrsta jafntefli Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Sjá meira