0035488506778 Guðmundur Brynjólfsson skrifar 18. febrúar 2019 07:00 Það er alltaf verið að hringja í mig úr þessu númeri, 0035488506778. Ég hef alltaf ætlað mér að svara ekki – en forvitnin hefur oftast borið mig ofurliði. Það er ætíð sami maðurinn á hinum enda línunnar (skil ekki þetta orðalag því það er ekki nein bévítans lína) og hann segir mér alltaf að athuga tölvuna. Svona eins og þegar Þórhallur miðill segir manni að athuga niðurfallið í bílskúrnum eða blóð í hægðum. En, aftur að þessum símtölum, ég fer auðvitað eftir því sem maðurinn segir og athuga tölvuna. Það er yfirleitt fljótgert því ég ástunda fátt annað en að horfa á þessa árans tölvu. Og þá segi ég: „Hún er bara eins og hún hefur alltaf verið.“ Þá segir hann mér að skoða hana betur. Raðnúmer og annað. En af því að ég er maður latur að eðlisfari þá lýg ég bara upp einhverju númeri. Les honum svo þessa uppdiktuðu töluröð. En hann trúir mér ekki. Þá leik ég á skolla, því mig er farið að gruna að þetta sé eitthvert svindl. Ég segi honum að hinkra ögn í símanum. Svo fer ég fram í eldhús og fæ mér tvær rúgbrauðssneiðar með heimagerðri kindakæfu og drekk kaffi með. Opna jafnvel uppþvottavélina í þeirri von að hún sé tóm. Tek úr henni ef ég er óheppinn. Fer þá aftur inn og held áfram að spjalla við kauða. Hann er yfirleitt fúll þegar þarna er komið sögu og biður um númerið á bankareikningnum mínum. Þá hika ég yfirleitt, en – get svo sem viðurkennt það núna. Ég les honum venjulega upp símanúmer íslenskra bankastjóra. Byrjaði á Birnu. Og þið hélduð að hún hefði sjálf látið lækka launin um 600 þúsund á mánuði. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Guðmundur Brynjólfsson Mest lesið Fimm ár í feluleik Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Norðurþing treður yfir varnaðarorð og eignarrétt Árni Björn Kristbjörnsson Skoðun Lífið í bænum - fyrir suma Sigurður Kári Harðarson Skoðun Þegar dómarar eru hluti af vandanum og bókun 35 Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Hver á arðinn af sjávarútvegsauðlindinni? Einar G. Harðarson Skoðun Að neyðast til að meta sína eigin umsókn í opinberan sjóð Bogi Ragnarsson Skoðun Aflögufærir, hafið samband við söngskóla í neyð Gunnar Guðbjörnsson Skoðun Tími vindorku á Íslandi – Hvað þyrfti til að koma í veg fyrir raforkuskerðingar? Edvald Edvaldsson Skoðun Valdhafar sem óttast þjóð sína eiga ekki skilið völdin Ágústa Árnadóttir Skoðun Samræmt námsmat er ekki hindrun heldur hjálpartæki Eiríkur Ólafsson Skoðun
Tími vindorku á Íslandi – Hvað þyrfti til að koma í veg fyrir raforkuskerðingar? Edvald Edvaldsson Skoðun
Tími vindorku á Íslandi – Hvað þyrfti til að koma í veg fyrir raforkuskerðingar? Edvald Edvaldsson Skoðun