Sólarlampi, skammdegi og rútínuleysi í aðalhlutverkum Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 19. janúar 2019 10:00 Geirþrúður og Árni glaðbeitt á sýningunni í Harbinger.
Listafólkinu Árna Jónssyni og Geirþrúði Einarsdóttur verður skammdegið að yrkisefni á sýningunni Sólarlampi sem opnuð verður í dag klukkan 17 í Harbinger á Freyjugötu 1. Þar er sólarljósi varpað á draumkennda svefnmollu sem fylgir tímabilinu þar sem nóttin er sameinuð deginum. Sýningin er sú fyrsta í sýningaröðinni Rólegt og rómantískt sem samanstendur af sex sýningum á sex mánuðum í Harbinger fyrri hluta þessa árs. Samhliða myndlist vinnur Árni við leikmyndagerð í leikhúsi og kvikmyndum. Það nýtir hann oftar en ekki í verkum sínum þar sem hann notar vídeó, ljósmyndir og innsetningar til að sviðsetja atburði og tilfinningar. Geirþrúður Einarsdóttir er menntaður klæðskeri og hefur starfað sem slíkur og einnig í myndlist,. Hún vinnur út frá formum sem hún finnur í umhverfi sínu og vekja áhuga hennar og efnisval hennar er fjölbreytt. Ókeypis aðgangur er að sýningum í Harbinger og allir eru velkomnir. Sýningin Sólarlampi stendur yfir til 9. febrúar.
Menning Mest lesið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið Ekki vottur af vöðvabólgu Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira