Björn Daníel kominn heim í FH Tómas Þór Þórðarson skrifar 28. desember 2018 12:30 Björn Daníel Sverisson með Jóni Rúnari og Ólafi Kristjánssyni. Vísir/Tom
Pepsi-deildarlið FH færði stuðningsmönnum sínum síðbúna en ansi veglega jólagjöf í dag þegar að Björn Daníel Sverrisson samdi við uppeldisfélagið á nýjan leik en hann kemur til FH frá AGF í Danmörku. Björn Daníel gerir fjögurra ára samning við FH en hann var kynntur til leiks á blaðamannafundi í Kaplakrika í dag: Björn er þriðji leikmaðurinn sem að FH fær til sín í vetur. Áður voru komnir miðverðirnir Brynjar Ásgeir Guðmundsson og Guðmann Þórisson sem báðir eru öllum hnútum kunnugir í Krikanum. FH hafði betur í harðri samkeppni við Val um Björn Daníel sem var kosinn besti leikmaður Pepsi-deildarinnar árið 2013 en hann skoraði þá níu mörk í 21 leik er FH hafnaði í öðru sæti á eftir Íslandsmeisturum KR. Björn Daníel kom 17 ára inn í FH-liðið í efstu deild árið 2008 og v orðinn fastamaður ári síðar. Hann á að baki 108 leiki fyrir FH í efstu deild og 32 mörk en hann varð Íslandsmeistari með liðinu þrisvar sinnum og bikarmeistari einu sinni áður en hann fór út í atvinnumennskuna. Miðjumaðurinn magnaði var seldur til Viking í Stavangri þar sem að hann skoraði ellefu mörk í 71 leik í norsku úrvalsdeildinni en þaðan fór hann til AGF í Danmörku þar sem hann hefur lítið fengið að spila upp á síðkastið. Björn Daníel var lánaður í fyrra til Vejle í dönsku 1. deildinni en AGF leysti hann undan samningi sínum við félagið fyrr í desember en hann átti að renna út næsta sumar. FH hafnaði í fimmta sæti Pepsi-deildarinnar á síðustu leiktíð og verður ekki í Evrópukeppni í fyrsta sinn í 16 ár.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Íslenski boltinn Snævar setti heimsmet Sport Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Enski boltinn „Er ekki alveg viss um hvar hann hefur lært körfubolta“ Körfubolti Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Fótbolti Maddie Sutton í sögubækurnar í fámennum hóp Körfubolti Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Enski boltinn Dagskráin í dag: Stórleikur í enska og NFL á fullt Sport Hvetur Napólí til að sækja óánægðan Mainoo Fótbolti Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Sjá meira