Vannærð börnin hafa tæpast kraft til að anda Heimsljós kynnir 15. nóvember 2018 15:15 Marco Frattini, WFP „
Það þarf að koma á friði í Jemen,“ segir David Beasley framkvæmdastjóri Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) eftir þriggja daga heimsókn til landsins. Hvergi í heiminum er neyðin jafn mikil og þörfin fyrir mannúðaraðstoð jafn brýn.„Hjarta mitt er brostið eftir það sem ég sá á sjúkrahúsinu í Hodeidah,“ segir Beasley í frétt frá WFP. „Ég sá smábörn, svo vannærð að þau voru ekkert nema skinn og bein, þau lágu þarna og höfðu tæpast kraft til að anda. Í nafni mannúðar hvet ég stríðandi fylkingar að binda enda á þetta hræðilega stríð. Gefum börnunum líf og þjóðinni tækfæri til að skapa sér tilveru á ný,“ sagði hann.Eins og fram hefur komið í fréttum síðustu daga búa sífellt fleiri við hungur í Jemen. Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna er reiðubúin að útvega mat og peningagjafir fyrir allt að tólf milljónir manna sem hafa orðið illa úti í átökunum. Nú þegar veitir stofnunin 7-8 milljónum íbúa Jemen mataraðstoð í hverjum mánuði. Beasley segir að friður sé eina svarið, fyrr verði ómögulegt að hefja endurreisn efnahagslífsins, koma gjaldmiðlinum í lag og hefja launagreiðslur til almennings svo þjóðin hafi auraráð til að kaupa mat og aðrar nauðsynjar.Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Hvít jörð blasti við: „Sálfræðilegt og andlegt gjaldþrot“ Veður „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent