Markmiðið að stuðla að sjálfbærum hagvexti Heimsljós kynnir 31. október 2018 16:00
Í utanríkisráðuneytinu hefur undanfarin misseri verið lögð aukin áhersla á samstarf við atvinnulífið í þróunarsamvinnu. Nýlega var sérstakur vinnuhópur settur á laggirnar til að kortleggja hlutverk og mögulega aðkomu atvinnulífsins, ásamt því að kanna með hvaða hætti hægt er að nýta íslenska sérþekkingu betur í þágu sjálfbærrar þróunar. „Markmiðið með framlagi Íslands til þróunarsamvinnu er að stuðla að viðvarandi sjálfbærum hagvexti og arðbærum mannsæmandi atvinnutækifærum í þróunarríkjum til að leggja grunn að aukinni velsæld. Aðkoma atvinnulífsins er mikilvægur þáttur í þessari uppbyggingu og því skiptir samstarf okkar við atvinnulífið miklu máli,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. Utanríkisráðherra mun taka þátt í morgunfundi utanríkisráðuneytisins sem haldinn verður þriðjudaginn 6. nóvember á Grand hóteli í Reykjavík kl. 9:00 – 11:00 þar sem nýjar leiðir til samstarfs á sviði þróunarsamvinnu verða kynntar. Fulltrúar fyrirtækja, frjálsra félagasamtaka og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta og heyra nánar um þessa samstarfsmöguleika. Utanríkisráðuneytið hefur útfært tvær meginleiðir um samstarf við atvinnulíf í þágu þróunarsamvinnu og Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Annars vegar er um að ræða nýjan samstarfssjóð við atvinnulífið um Heimsmarkmiðin sem ætlaður er samstarfsverkefnum fyrirtækja. Hlutverk sjóðsins er að hvetja til þátttöku og framlags atvinnulífs til þróunarsamvinnu, með það að markmiði að stuðla að atvinnusköpun og sjálfbærum hagvexti í fátækum ríkjum. Hin leiðin fellur undir samstarf við félagasamtök með aukinni áherslu á þá möguleika í samvinnu við félagasamtök sem tengjast atvinnulífinu og samstarfi félagasamtaka við fyrirtæki um tiltekin verkefni. Þessi verkefni geta beinst að víðtækara sviði tengdum áherslum Íslands í þróunarsamvinnu og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Morgunfundurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis.Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim.Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent