Stórblöð mæla með Ragnari Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar 12. júlí 2018 06:00 Ragnar Jónasson fær hrós hjá stórblöðum. Fréttablaðið/Stefán
Á dögunum mælti stórblaðið New York Times með nokkrum bókum við lesendur sína sem gætu kælt þá niður, en nokkuð heitt er í Bandaríkjunum um þessar mundir. Ein þessara bóka er Snjóblinda eftir Ragnar Jónasson en sagan gerist á Siglufirði. Hverri bók sem New York Times mælir með fylgir stutt tilvitnun og hjá Ragnari er vitnað í upphaf sögunnar:„Jörðin var snævi þakin, snjórinn svo hvítur að hann hafði nánast unnið sigur á myrkrinu þetta vetrarkvöld. Himneskur í hreinleika sínum. Það hafði snjóað frá því um morguninn, snjókornin voru stór og voldug, féllu tignarlega til jarðar.“ Meðal annarra bóka sem New York Times mælir með á þessum árstíma eru Lesið í snjóinn eftir Peter Höeg, Duld (The Shining) eftir Stephen King, Ethan Frome eftir Edith Wharton og Úlfhundurinn eftir Jack London. Þetta eru ekki einu meðmælin sem Ragnar fær frá stórblöðum því Sunday Times birti á dögunum lista yfir þær bækur sem mælt er með að fólk taki með sér í sumarfríið og þar er að finna Dimmu sem er sögð vera frábær spennusaga, en þar rannsakar lögreglufulltrúinn Hilda síðasta sakamál sitt. Í Sunday Times er Ragnar í félagsskap með James Patterson og fyrrverandi Bandaríkjaríkjaforseta Bill Clinton sem eru höfundar metsölubókarinnar The President is Missing sem hefur fengið góða dóma. Meðal annarra höfunda á listanum er meistari John le Carré með bók sína A Legacy of Spies. Af Ragnari sjálfum er það að frétta að hann er að leggja lokahönd á draugalega glæpasögu sem kemur út í haust.
Birtist í Fréttablaðinu Menning Tengdar fréttir 14 glæpasögur tilnefndar til Blóðdropans Dómnefnd hefur valið bestu glæpasöguna sem kom út á síðasta ári. 14. júní 2018 08:46 Mest lesið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið Ekki vottur af vöðvabólgu Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira
14 glæpasögur tilnefndar til Blóðdropans Dómnefnd hefur valið bestu glæpasöguna sem kom út á síðasta ári. 14. júní 2018 08:46