73 laxar úr Miðfjarðará í fyrradag Karl Lúðvíksson skrifar 18. júlí 2018 09:00 Það veiddust 73 laxar í Miðfjarðará í fyrradag. Mynd: Miðfjarðará Lodge FB
Ein allra besta veiðiá landsins er Miðfjarðará og hún virðist hrokkinn vel af stað og gott betur en það. Það koma reglulega ótrúlegar veiðitölur úr Miðfjarðará en áin hefur undanfarin ár verið ein allra besta veiðiá landsins og hefur átt toppsætið af náttúrulegu ánum oftar en nokkur önnur á síðustu 10 ár. Í fyrradag kom heldur betur kippur í veiðina þegar 73 löxum var landað á sama deginum og það er ekkert lát á veiðinni. Þessi vika í ánni gæti farið í að skila 400-500 löxum í það heila og gerir það að verkum að hún er farin að klóra í Þverá og Kjarrá sem hafa verið aflahæstar það sem af er sumri. Á morgun kemur nýr uppfærður listi yfir veiðitölur úr laxveiðiánum frá Landssambandi Veiðifélaga en í síðustu viku var Þverá og Kjarrá þar efst með 1.186 laxa en hún er í um 1.400 löxum síðast þegar við vissum. Miðfjarðará verður komin í um 1.000 á morgun svo þetta er að verða ansi spennandi keppni milli þessara tveggja veiðisvæða. Urriðafoss er engu síður ennþá aflahæsta áin sé tekið mið af löxum pr. stöng en hún er líklega komin yfir 1.000 laxa í dag.
Mest lesið Erfitt að fá maðka vegna hlýinda Veiði Gunnar Bender stendur Veiðivaktina enn eitt sumarið Veiði Sjóbirtingurinn er mættur í Leirá Veiði Þrír á land á fyrstu vakt í Jöklu Veiði Blanda verður „fly-only“ og kvóti minnkaður Veiði Helgarviðtal: Skjálfandi á beinunum á bökkum Svartár (fyrri hluti) Veiði Frábær byrjun í Hlíðarvatni Veiði Black Ghost sterk í Urriðan Veiði 50 laxar á 3 dögum úr Skjálfanda Veiði 99 sm lax í Elliðaánum Veiði