Áhrifa Lars gætir enn en nýlegur árangur öðrum að þakka Kolbeinn Tumi Daðason í Volgograd skrifar 21. júní 2018 13:45 Lars Lagerbäck með Heimi Hallgrímsson við sína hægri hönd tóku til hjá landsliðinu og gáfu liðinu þá trú að það gæti tryggt sér sæti á stórmótum í fótbolta. Vísir/Vilhelm
Alfreð Finnbogason og Hannes Þór Halldórsson eru sammála um að ráðning Lars Lagerbäck sem landsliðsþjálfara á sínum tíma hafi breytt miklu. Bjartsýni hvað A-landsliðið varðaði var ekki mikil þegar hann var kynntur til sögunnar haustið 2011 með Heimi Hallgrímsson sem sína hægri hönd. Íslenska liðið hafði þó góðan grunn ungra leikmanna sem spilað hafði í úrslitakeppni EM 21 árs landsliða sumarið 2011. Liðinu gekk ekkert sérlega vel í úrslitakeppninni en lagði meðal annars Þjóðverja 4-1 á leið sinni þangað. „Lars Lagerbäck gaf okkur svo mikið,“ sagði Hannes þegar sænskur blaðamaður spurði þá Alfreð og Hannes út í hversu mjög þeir söknuðu Lars. „Hann kom inn á góðum tíma, þegar íslenskur fótbolti þurfti mann eins og hann með alþjóðlega reynslu. Við lærðum mikið af honum og hann stóð sig rosalega vel,“ segir Hannes.Landsliðsmenn á góðri stundu í æfingaferð skömmu áður en Lars og Heimir tóku við landsliðinu.VísirUm svipað leyti og Lars mætti tók Hannes Þór við af Gunnleifi Gunnleifssyni sem aðalmarkvörður landsliðsins. Síðan hefur gengi liðsins verið ævintýri líkast. Margir höfðu áhyggjur af brotthvarfi hans eftir úrslitakeppni EM. Gæti landsliðið haldið sjó? Eða bætt sig? Myndu strákarnir bregðast eins við skipunum frá Heimi án Lars? Áhyggjurnar virðast hafa verið á sandi reistar. „Síðan hann fór höfum við stigið skref fram á við,“ segir Hannes. Orð að sönnu. Liðið vann einn sterkasta ef ekki sterkasta riðilinn í undankeppninni. Gerði svo jafntefli við Argentínu í fyrsta leik sínum á HM. Hannes er þó þakklátur þeim sænska. Alfreð Finnbogason tekur undir með Hannesi.Alfreð og Hannes eru sammála um þá þýðingu sem koma Lars Lagerbäck hafði. Nú sé hins vegar tími til kominn að gefa þeim kredit sem komu liðinu á HM.Vísir/Vilhelm„Hann gerði rosalega góða hluti fyrir íslenskan fótbolta og verður alltaf minnst,“ segir Alfreð. Ólíkt Hannesi fékk Alfreð ekki alltaf þann spilatíma sem hann eða aðrir töldu hann eiga skilið. Alfreð hefur raðað inn mörkunum í evrópska boltanum undanfarin ár en er fyrst nýlega orðinn fyrsti kostur í stöðu framherja hjá landsliðinu. Hann segir mikinn mun á því trausti sem hann fái nú en þegar Lars og Heimir stýrðu liðinu. „Ég held að núverandi starfsfólk og leikmenn ættu að fá þakkirnar fyrir árangurinn í undankeppninni og hér í Rússlandi.“ Fleiri leikmenn hafi komið við sögu, liðið hafi styrkt sig og orðið sveigjanlegra þegar komi að leikkerfum. Enginn muni gleyma þætti Lars. „En athyglin ætti að vera á fólkinu sem er hérna.“Vísir er með öflugt teymi í Rússlandi sem verður með ítarlegan fréttaflutning af íslenska liðinu á HM. Fylgist með á samfélagsmiðlum okkar - á Facebook, Twitter og Instagram.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Sjá meira