Veiðivísir gefur Veiðikortið á Facebook Karl Lúðvíksson skrifar 18. apríl 2018 08:30 Kátir krakkar að veiða í Elliðavatni en veiði hefst þar á morgun. Mynd: Veiðikortið
Veiðikortið er líklega ódýrasta veiðileyfi sem nokkur veiðimaður getur verið með í vasanum og vinsældir þess aukast á hverju ári. Það er kannski ekki skrítið að Veiðikortið sé vinsælt því það er bæði ódýrt og veitir leyfi í 34 vatnasvæði víðsvegar um landið og innan kortsins eru nokkur af vinsælustu vötnum landsins. Þar má kannski helst nefna Þingvallavatn, Elliðavatn, Gíslholtsvatn, Hraunsfjörð, Kleifarvatn, Úlfljótsvatn, Vífilstaðavatn og vötnin í Svínadal svo nokkur séu nefnd. Veiði er þegar hafin af þeim vötnum sem opin eru fyrir veiði eftir að ís fer af vötnunum en hin vötnin opna nú hvert af öðru. Elliðavatn opnar á morgun sumardaginn fyrsta og það má reikna með því eins og venjulega að margir sæki vatnið heim á þessum fyrsta degi. Veiðivísir ætlar í tilefni af sumarkomunni að gefa nokkrum heppnum nýjum vinum og gömlum vinum Veiðikortið að gjöf af tilefni sumarkomunnar. Það sem þú þarft að gera er að heimsækja Facebooksíðu Veiðivísis og þú getur gert það hér, smella á LIKE og þar með ert þú orðinn nýr vinur og kominn í pottinn. Við drögum út bæði í hóp nýrra og þeirra sem þegar eru vinir okkar svo það eiga allir möguleika. Á hverju veiðitímabili höfum við boðið heppnum Facebook vinum okkar í veiði svo það er til mikils að vinna. Gleðilegt sumar og góða veiði!
Mest lesið Umsóknarfrestur SVFR rennur út í kvöld Veiði Ágæt bleikjuveiði í Litluá Veiði Lifnar yfir bleikjuveiði í Vífilstaðavatni Veiði Sjókvíaeldi mótmælt við Austurvöll á morgun Veiði SVFR leitar að mönnum til nefndarstarfa Veiði Gamla veiðidótið ekki alltaf verðlaust en yfirleitt Veiði Vikulegar veiðitölur úr laxveiðiánum Veiði Þrjú ný vötn fyrir Veiðifélaga Veiði Veiðidagur fjölskyldunnar er á sunnudaginn Veiði Stórir urriðar í Laxárdalnum þrátt fyrir kulda Veiði