Febrúarspá Siggu Kling - Vogin: Vertu gegnsæ, opnaðu hjarta þitt og segðu hlutina hreint út Stefán Árni Pálsson skrifar 2. febrúar 2018 09:00
Elsku Vogin mín, þú ert svo mögnuð orka og öðruvísi en allir, þú líkist helst Rummikubb og þeir sem elska þig kunna á Rummikubbinn þinn, en þeir sem skilja þig ekki eru ekkert að reyna að læra á þennan Rummikubb sem þú ert. Þegar það gerist að þú ert í tengslum við þá sem skilja þig ekki og skilja ekki þína samsetningu þá geturðu hreinlega orðið brjáluð og látið allt fara í taugarnar á þér, en það bitnar á þeim sem í raun og veru skilja þig. Það er yfir þér svo tignarleg orka og það er hægt að segja að þú sért stílisti fyrir annað fólk, því þegar þér líður vel þá lítur fólk á þig og hugsar: Vá, hvað hún/hann er smart elsku Vogarkerlingin/karlinn minn. Ég elska svo sérstaklega samkynhneigt fólk og þá tignarlegu orku sem þessar persónur gefa frá sér, því þær hafa yfirleitt farið í gegnum svo margt og þú hefur þessa geislandi orku, elsku Vogin mín, að maður tekur eftir þér hvar sem þú ferð. Svo mundu að þú hefur þennan X-factor, gerðu meira úr honum en þú ert að gera í augnablikinu. Vertu gegnsæ, opnaðu hjarta þitt og segðu hlutina hreint út. Þú ert búin að vera í völundarhúsi og ekki alveg viss um leiðina út, en í þessu völundarhúsi sem þú ert í virðast margar útgönguleiðir, svo taktu sterka ákvörðun í stóru máli sem stendur þér nærri, því ekkert má vera kannski á næstunni, heldur annaðhvort já eða nei og standa við það! Ef þér finnst að einhver sé að ráðast á þig, bíddu þá alveg róleg og gefðu ekkert andsvar því það virðist vera eins og hlutirnir falli í góðan jarðveg ef þú bíður í nokkra daga, pínulítið að anda inn í þetta. Ástin er eitthvað svo sterk í stjörnumerkinu þínu að þú ættir algjörlega hárnákvæmt að vita hvað þú vilt og þú skalt alls ekki hvika frá því, því þú ert á réttri leið ef þú finnur lyktina af ástinni. Það eru miklir peningar allt í kringum þig og peningar eru bara orka til að hjálpa þér og þeir munu svo sannarlega koma á réttu augnabliki til að auðvelda þér lífið.Frægir í Voginni: Kári Árnason landsliðsmaður, Glúmur Baldvinsson stjórnmálafræðingur, Hjalti flugþjónn, Ingi í Sign, Jón Axel Ólafsson athafnamaður, Matt Damon leikari, Íris Berg, fatahönnuðurinn minn, Mary Poppins, Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra og sjónvarpskona, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Lilja Dögg Alfreðsdóttir alþingiskona, Ósk Gunnarsdóttir útvarpskona, María Einarsdóttir ritari stjörnuspánnar, Arnþrúður Karlsdóttir útvarp Saga, Skúli Mogensen, Hulda Hólmkelsdóttir fréttakona, Walter Matthau, Olavia Newton John, Ragga Gísla, Steinn Steinarr, Margret Thatcher, Ragnheiður Elín Árnadóttir, hinn mikli meistari. Þú ert svo tignarleg og til í lífið. Ég hef hummað lagið Amazing Grace yfir allan spádóminn til þín og það eru skilaboðin til þín, svo hlustaðu – Amazing Grace (Rhema) Kossar og knús – þín Sigga Kling
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Sjá meira