Fyrsta stefnumót Þórdísar Kolbrúnar og eiginmannsins var á B5 Stefán Árni Pálsson skrifar 30. janúar 2018 15:30 Þórdís Kolbrún er 30 ára ráðherra og finnur sig vel í því starfi.
Fyrrum sunddrottningin Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hefur frá árinu 2017 verið ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Hún er fædd á Akranesi 4. nóvember 1987 og er yngsti ráðherrann. Fjallað var ítarlega um Þórdísi og hennar feril í þættinum Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi. Þórdís er gift Hjalta Sigvaldasyni Mogensen lögmanni og saman eiga þau tvö börn, þau Marvin Gylfa og Kristínu Fjólu. „Ég get ekki sagt að fjölskyldan mín sé mjög pólitísk og ég hef nú oft sagt það við mömmu að ég telji nú að ég hafi endað í stjórnmálum vegna þess hvernig þau ólu mig upp,“ sagði Kolbrún í þættinum í gær. „Ég átti að gera kröfur og sjá svolítið um mig sjálf. Það þarf að hafa fyrir hlutunum og maður uppsker eins og maður sáir. Það á við um langflesta, en það eru einhverjir sem hafa ekki tækifærin og fæðast inn í slíkar aðstæður. Þess vegna þurfum við þetta kerfi til að grípa þá. Við búum samt í landi þar sem langflestir hafa tækifærin og við þurfum að gera allt til að halda í það og gera enn betur.“ Þórdís segir sitt ráðuneyti vera það skemmtilegasta. „Þetta eru allt málaflokkar sem tala ótrúlega mikið inn í framtíðina og svona. Ferðamálin fékk maður svolítið í fangið. Það er svona atvinnugrein sem hefur vaxið hratt og það þarf að taka margar ákvarðanir. Ég hef eytt mestum tíma í ferðamálin.“ Hún segist vera meðvituð um það að hún hafi ekki tuttugu ára reynslu úr stjórnmálum. „Ég hef samt ýmislegt annað í staðinn og svo þarftu að velja gott fólk í kringum þig sem vegur þig upp. Það er það sem skiptir mestu máli held ég.“ Hjalti Sigvaldason Mogensen, eiginmaður Þórdísar, sagði frá fyrsta stefnumóti þeirra hjóna. „Það var nú bara skemmtistaðasleikur á B5 eftir útskrift hennar úr BA. Ég vissi hver hún var og við vissum af hvor öðru. Hún er ekki ráðherrann á þessu heimili og við skiptum þessu jafnt. Ég fæ kannski aðeins meira að vera ráðherra, þar sem hún er svo lítið heima,“ segir Hjalti. Hér að neðan má sjá þáttinn í heild sinni frá því í gær.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira