Forstjóri FME á leið í fjögurra mánaða námsleyfi Hörður Ægisson skrifar 17. janúar 2018 08:30 Unnur mun sækja námskeið við Evrópuháskólann í Flórens og viðskiptaháskólann IESE í Barselóna. Vísir/Anton
Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins (FME), fer í tæplega fjögurra mánaða námsleyfi frá störfum í seinni hluta næsta mánaðar. Jón Þór Sturluson, aðstoðarforstjóri FME, verður starfandi forstjóri eftirlitsins þangað til Unnur snýr aftur til starfa. Unnur staðfestir þetta í samtali við Markaðinn en hún verður í námsleyfi frá 20. febrúar næstkomandi fram í miðjan júní á þessu ári. Hún segist í fyrstu ætla að dvelja í Flórens á Ítalíu og sækja námskeið, sem eru meðal annars kennd í samstarfi við Evrópska bankaeftirlitið, við banka- og fjármáladeild (e. School of Banking and Finance) Evrópuháskólans í Flórens. Síðari hluta námsleyfisins verður Unnur hins vegar í námi við viðskiptaháskólann IESE í Barselóna þar sem hún mun taka námskeið á sviði stjórnunar. Unnur, sem er lögfræðingur að mennt, hefur verið forstjóri Fjármálaeftirlitsins frá árinu 2012 en þar áður hafði hún verið yfirlögfræðingur FME. Auk þess hefur hún starfað hjá bankaeftirliti Seðlabanka Íslands og sem sérfræðingur í fjármálaþjónustu hjá EFTA-skriftstofunni í Brussel. Fréttin birtst fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál.
Mest lesið Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Árni Oddur tekur við formennsku Viðskipti innlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Útilíf og Alparnir sameinast undir merkjum Útilífs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Sjá meira