Nýr Ford Fiesta frumsýndur 27. október 2017 14:51 Ford Fiesta hefur alltaf verið vinsæll og söluhár bíll.
Brimborg frumsýnir nýjan Ford Fiesta laugardaginn 28.október milli klukkan 12 og 16 í sýningarsölum Ford að Bíldshöfða 6 í Reykjavík og Tryggvabraut 5 á Akureyri. Ford Fiesta hefur verið endurhannaður frá grunni með gjörbreyttum framenda, rennilegum framljósum og straumlínulaga línum eftir öllum bílnum. Glæsilegt handverk, einstakt val á efnum og mjúk lýsing tekur á móti þér í nýjum Ford Fiesta.Mest seldi smábíllinn í EvrópuFord Fiesta er lipur og aukinn krafturinn gerir aksturinn enn ánægjulegri. Einkenni Ford Fiesta eru ríkulegur staðalbúnaður, hagstætt verð og lágur rekstrarkostnaður. Fiesta höfðar jafnt til þeirra sem meta akstursánægju og öryggis mikils og þeirra sem velja fyrst og fremst sparneytni en þar hefur Ecoboost verðlaunavélin komið vel út. Það er ekki tilviljun að Ford Fiesta hefur til margra ára verið mesti seldi smábílinn í Evrópu.Fjórar útfærslur og ríkulegur staðalbúnaðurFord Fiesta er fáanlegur í fjórum útfærslum og er í öllum tilfellum ríkulega búinn. Fiesta er með upphitanlegri framrúðu sem gerir það að verkum að ökumaður þarf aldrei að skafa, Easy Fuel eldsneytisáfyllingarkerfi án bensínloks, veglínuskynjara og Ford My Key sem getur takmarkað hámarkshraða, t.d fyrir unga og óreynda ökumenn. Ford Fiesta kostar frá 2.250.000 krónum.Lagleg innrétting í nýjum Fiesta.
Mest lesið Skopmyndateiknari skotinn til bana Erlent Kennarar óttast framkvæmd símafrís Innlent Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Innlent Ekki óvenjulegt að konan gangi laus þrátt fyrir hrottalegar lýsingar Innlent Á sjúkrahús eftir að hafa kastast úr golfbíl Innlent Nei-kvæðir ungliðar sameinast gegn ESB Innlent Inga komin úr átján daga veikindaleyfi: „Hún getur náð okkur, veiran“ Innlent Þrír fluttir eftir alvarlegt umferðarslys í Reykholti Innlent Á ekki von á fleiri aflýsingum vegna mönnunar Innlent Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Erlent