Oddný slær í gegn á Instagram: Með yfir sjötíu þúsund fylgjendur Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 30. september 2017 10:00 Oddný Ingólfsdóttir er orðin þekkt fyrir að birta myndir tengdar jákvæðri líkamsímynd Instagram
Oddný Ingólfsdóttir er 24 ára nemi búsett í Garðabæ en hún er með fylgjendur um allan heim í gegnum Instagram. Oddný er orðin þekkt fyrir myndir tengdar jákvæðri líkamsímynd en hún segir að ljótar athugasemdir geti verið slæmar fyrir sjálfstraustið. „Það er innan við ár síðan þetta gerðist. Ég byrjaði fyrir þremur árum á Instagram en þegar ég byrjaði að setja inn myndir af sjálfri mér byrjaði ég að fá nýja fylgjendur.“Draumur að rætastOddný merkti myndirnar sýnar með texta tengdum jákvæðri líkamsímynd og í kjölfarið höfðu erlendar Instagram síður samband við hana og fengu leyfi til þess að birta mynd af henni til þess að kynna hana. Notar hún merkingar eins og #everybodyisbeautiful, #plussize, #loveyourself, #bodypositive og fleiri en flestar eru þær á ensku. „Ég er ekki mjög grönn þannig að ég var að nota bodypositive merkingar. Instagrammið mitt byrjaði svo að vaxa ótrúlega hratt þegar ég birti myndir af mér á nærfötum. Ég hef ótrúlega mikinn áhuga á nærfötum. Einu sinni þegar ég var nýbúin að panta mér nýtt nærfatasett langaði mig geðveikt mikið að taka mynd af því.“ Fyrirtækið sem Oddný keypti nærfötin hjá er núna að fara í samstarf við hana. „Þetta er virkilega skemmtilegt fyrirtæki sem framleiðir og selur frá öðrum nærföt fyrir konur sem nota stærri skálastærðir. Þeir hafa sent mér nokkra hluti í gegnum tíðina en höfðu núna samband við mig og vildu vinna með mér. Ég er búin að versla hjá þeim í mörg ár svo þetta er draumur að rætast.“ A post shared by ODDA (@oddaiceland) on Aug 4, 2017 at 3:08pm PDTReynir að finna sinn stílOddný er kokkanemi í Menntaskólanum í Kópavogi og er líka listakona. Hún hefur ótrúlega gaman að sitja fyrir á myndum og birta þær á Instagram. „Ég hef mikinn áhuga á anime og tölvuleikjum og cosplay, mig langar svolítið að gera það sjálf en veit kannski ekki alveg hvernig ég á að byrja á því. Ég er líka að selja portrait teikningar í gegnum Facebook síðuna mína, aðallega blýantsteikningar.“ Oddný er ekki með neina leiki til þess að fjölga fylgjendum sínum Instagram, hópurinn stækkar bara jafnt og þétt. „Ég birti bara myndir af mér og reyni að láta ekki líða of langt á milli þeirra. Ég fæ yfirleitt nokkurhundruð nýja fylgjendur daglega.“ Hún segir að Instagram síðan sín hafi breyst mjög mikið frá því fyrir þremur árum þegar hún birti fyrstu myndirnar. „Ég er að hugsa miklu meira um gæðin heldur en til dæmis fyrir hálfu ári síðan. Ég er að reyna að finna mér betri stíl.“Kærastinn tekur myndirnarOddný hefur ekki unnið mikið með ljósmyndurum en langar að gera meira af því í framtíðinni. „Ég tek oftast myndirnar sjálf eða kærastinn minn. Ég hef alveg unnið með ljósmyndurum en hef verið frekar feimin við það. Maður þarf svolítið að stökkva út í djúpu laugina.“ Oddný er líka skráð á söfnunarsíðuna Patrion og er hún að íhuga á að safna þar fyrir flottum myndatökum. „Þar getur fólk greitt fyrir spjall í gegnum síðuna eða fengið aðgang að efni frá manni. Ég hef ekki mikið verið að nota þetta en ég veit að fullt af stelpum fá mikið af pening í gegnum þetta.“ Hún segir að það sé hægt að gera mikið af skemmtilegum hlutum í gegnum þetta. Hingað til hefur hún safnað greiðslunum inn á reikning en langar að nota síðuna meira og setja peninginn í að kaupa sér föt fyrir myndatökur og borga ljósmyndara. „Ég er með nokkra myndaþætti þarna inni á. Þá hef ég kannski tekið margar skemmtilegar myndir en sett bara eina á Instagram. Þarna er þá hægt að sjá allar myndirnar og allskonar upplýsingar um myndatökuna og fleira.“ Hún segir að myndirnar sem hún birtir á Instagram og viðbrögðin sem hún fær geti haft áhrif á sjálfstraustið. „Það er bara upp og niður, ég á það til að draga mig stundum niður sjálf. Svo fæ ég stundum fallegar athugasemdir sem láta mér líða vel.“ Just finnished my work weekend, looking forward to spending some quality time with the waifu. A post shared by ODDA (@oddaiceland) on Aug 13, 2017 at 12:12pm PDT @fashionnovacurve sent me this bikini , i really like it, its super cute! They also gave me the discount code ODDNY for 15% off if anybody is interested. I took this picture ontop of the volcano Hengill, it was a beautiful day and it was almost warm #fashionnovacurve #novababe #ad #plussizefashion #plusisamust #curvy #curves #loveyourself #bodypositivity #bodypositive #effyourbeautystandards #bikinibody #iceland #plussize #icelandicnature #volcano #curvygirl #curvymodel #honormycurves #chubbybunny #plusmodelmag #fashionnova #bikini #mua #curvesaresexy #curvygirl #plussizemodel A post shared by ODDA (@oddaiceland) on Aug 23, 2017 at 3:51pm PDT
Mest lesið Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Húðin breytist með aldrinum Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu Lífið samstarf La Gradiva hlaut Gullna lundann Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Sjá meira