Margt að varast í leikhúsinu Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 16. september 2017 14:00 Faðir Haraldar er Stefán Jónsson leikstjóri sem ræddi við hann um allt það sem þarf að varast. Visir/Stefán
Haraldur Ari Stefánsson á annasaman leikvetur fram undan. Haraldur sem áður gerði garðinn frægan í hljómsveitinni Retro Stefson fer með hlutverk í leikritinu 1984.„Ég er kominn með smá sviðsskrekk,“ segir Haraldur Ari Stefánsson leikari um sýningar vetrarins. Hann þreytir frumraun sína á sviði þennan leikvetur hjá Borgarleikhúsinu og tilfinningarnar eru blendnar. „Á sama tíma og ég er með smá skrekk, er ég spenntur og hlakka til, en ég er að reyna að vera slakur,“ segir hann. Æfingar á verkinu 1984 eftir George Orwell í leikstjórn Bergs Ingólfssonar hófust í vor og Haraldur fermeð tvö hlutverk í sýningunni. Æfingar á Himnaríki og helvíti hefjast í október og Haraldur fer með hlutverk Rocky í söngleiknum Rocky Horror Show á næsta ári.„Ég er þó aðeins byrjaður að undirbúa Rocky, sanka að mér myndum á netinu og kynna mér efnið. En ég vil ekki gera ekki mikið af því strax. Það skiptir máli að einbeita sér að því sem maður er að gera hverju sinni. þetta er hins vegar mjög spennandi hlutverk, segir hann og er aðeins búinn að frétta af því að hann þurfi að byggja sig upp í líkamsrækt. „Já, ég þarf líkast til að byrja að lyfta, stækka mig svolítið,“ bætir hann við.Það var árið 2012 sem Haraldur söðlaði um og hóf nám við Central School of Speech and Drama í London. Hann lauk námi árið 2015 en kaus að búa aðeins lengur úti í London með kærustu sinni. „Ég var í skólanum frá morgni til kvölds og oft um helgar. Þannig er lífið í flestum leiklistarskólum. Þetta var líka mjög mikil líkamleg áreynsla. Ég var eiginlega alltaf með harðsperrur og blöðrur á fótunum.“ Hann á erfitt með að bera saman leiklistina og tónlistina. „Maður er lengur að sjá afrakstur vinnu sinnar. Leiklistin krefst einnig töluvert meiri samvinnu því það koma miklu fleiri að uppsetningu leikverks en að tónsmíðum. Svo er maður oft að vinna með einhverjum sem maður þekkir lítið og þarf að kynnast. Maður þarf að vera opinn fyrir því. Sköpunin er kannski svipuð í grunninn en það er margt ólíkt,“ segir Haraldur. Hann þekkir leikhúslífið, faðir hans er Stefán Jónsson leikstjóri. „Ég er alinn upp í leikhúsinu en valdi sjálfur að sinna tónlist þegar ég var unglingur. Þegar ég fór í MH skráði ég mig í leikfélagið. Þá fékk ég raunverulegan áhuga á leiklist. Í MH komu leikstjórar eins og Vignir og Stefán Rafn til liðs við leikfélagið og þeir höfðu sterk áhrif á mig. Pabbi þrýsti ekki á mig, þvert á móti,“ segir Haraldur frá. „Hann nefndi við mig að margt annað væri gott að gera í lífinu. Það væri margt að varast í leikhúsinu. Lífsstíllinn sem fylgdi starfinu væri krefjandi. Maður þyrfti oft að takast á við höfnun, sjálfsefa og streitu. Hluti sem maður glímir við einn og þarf að búa sig undir. En ég valdi þetta, leiklistin kallaði einhvern veginn aftur og aftur á mig. Mér finnst leiklistin skemmtilegasta útgáfan af því að læra. Ég er knúinn áfram til að læra og lesa. Ég hef líka gaman af sögum og skáldskap. Leiklistin er það sem ég hef mestan áhuga á og svo verð ég að viðurkenna að mér finnst ekkert leiðinlegt að vera í sviðsljósinu. Bergur Þór Ingólfsson orðaði þetta bara ágætlega á æfingu um daginn: Þetta er skemmtilegasta vinna í heimi.“ Hann saknar þess samt að spila á tónleikum. „Maður fær útrás við að spila á tónleikum sem er ekki hægt að jafna við margt annað. En ég fer samt nánast daglega í stúdíóið okkar 101derland til að vinna með æskuvinum og uppeldisbræðrum mínum, Jóhanni, Unnsteini, Loga, Bjarti og fleira góðu fólki. Þar finn ég mikinn innblástur og fæ að vera viðriðin tónlistina áfram t.d. með því að framleiða tónlistarvideo og fleira.“
Mest lesið Af og frá að fimmti þáttur hafi verið klipptur extra mikið Lífið Bubba svarað og „barnaleg vitleysa“ í Borgó Menning Glæsihús augnlæknis til sölu Lífið Ólöf Skafta og Kristín dannaðar í miðborginni Lífið Fleiri lög berjast um farseðilinn þrátt fyrir óvissuna Lífið Lögðu til að Gunnar og Halldór deildu Nóbelsverðlaununum Menning Æstur aðdáandi óð í Grande Bíó og sjónvarp Áföll og samskiptamynstur erfast milli kynslóða Lífið Tíu stellingar sem örva G-blettinn Lífið Lögmálið um lítil typpi Lífið Fleiri fréttir Lögðu til að Gunnar og Halldór deildu Nóbelsverðlaununum Bubba svarað og „barnaleg vitleysa“ í Borgó George R. R. Martin á Íslandi: „Það er smá svalt hérna“ Skálað fyrir glæsilegustu dönsurum landsins og Jónsa úr Sigur Rós Krafa um betri ensku en íslensku reyndust mistök Magnús nýr formaður stjórnar Leikfélags Reykjavíkur „Erfiðasti skóli sem ég hef farið í“ Floppin í haust og sjónvarpslaus sjónvarpsverðlaun Fyrrverandi ráðherra Dana: „Þið voruð aldrei nýlenda“ Samkeppnin í New York minnti á X-Factor keppni Hrekkjavökubúningar sem er best að forðast Magnús Karel og Inga Lára hlutu menningarviðurkenningu Árborgar Cecilie tekur við af Auði Þórdís Dröfn hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Katrín og Ragnar snúa aftur með nýja bók Fullkominn vettvangur til að verja vetrarfríinu Hver er uppáhaldsbókin þín eftir Halldór Laxness? Ný gjaldfrjáls íslensk-ensk veforðabók opnuð Ryan Eyford handhafi Vigdísarverðlaunanna 2025 Víkingur Heiðar hlýtur tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs Lína orðin að „peningasjúkum TikTok-trúði“ eða sjálfsögð markaðssetning? Páll Baldvin fer fram gegn tillögu kjörnefndar Menningarvaktin: Ráðning óperustjóra jafn spennandi og þjálfara KR Trylltust við taktinn í barokkbúningum László Krasznahorkai hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Léleg“ hönnun gervigreindar reyndist mannanna verk Áhersla á hæglæti á Sequences Fögnuðu Heimsins besta degi í helvíti Markmiðið að græða ekkert og „helst tapa pening“ Sjá meira