Íslenskt sviðslistafólk rísandi stjörnur í Þýskalandi Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 1. september 2017 10:15 Katrín Gunnarsdóttir, Védís Kjartansdóttir og Sigurður Arent í Marble Crowd.
Íslenski sviðslistahópurinn Marble Crowd var á dögunum tilnefndur til gagnrýnendaverðlauna tímaritsins Tanz fyrir verkið Moving Mountains In Three Essays sem var frumsýnt í mars á aðalsviði Kampnagel leikhússins í Hamborg. Það var gagnrýnandinn Irmela Kästner sem útnefndi verkið sem sýningu ársins en jafnframt var hópurinn valinn sem einn af rísandi stjörnum sviðslista í Þýskalandi. Tímaritið Tanz er virtasta útgáfa um dans í Evrópu og Marble Crowd var þar í hópi þekktra danshöfunda. Hópurinn sem kom að Moving Mountains samanstendur af Grímuverðlaunahöfunum Katrínu Gunnarsdóttur og Sögu Sigurðardóttur, dansaranum Védísi Kjartansdóttur, myndlistarmanninum Kristni Guðmundssyni og skáldinu Sigurði Arent. Sviðsmynd og búningar voru í höndum Tinnu Ottesen, Gunnar Karel Másson samdi tónlist og Lars Rubarth hannaði ljós. Næstu sýningar eru í Færeyjum og Danmörku.
Menning Mest lesið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið Gary Busey játar kynferðisbrot Lífið Sweeney sökuð um kynþáttahyggju Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira