Skömmin er okkar Benedikt Bóas skrifar 13. júní 2017 07:00 Það er svo gaman að fara á völlinn í Færeyjum. Þar er boðið upp á færeyskan bjór og þar er boðið upp á stemningu. Leikur Færeyja og Sviss á laugardag var svo mikil uppgötvun fyrir okkur félagana að við gátum ekki annað en skammast okkar fyrir hvernig KSÍ og fótboltasamfélagið er að gera hlutina hér á landi. Í Færeyjum er Torsvöllur með þrjár stúkur upp við völlinn. Fyrir aftan annað markið var VIP-svæðið og þar fyrir neðan hvatti 12-an þeirra Færeyinga liðið áfram. Á Laugardalsvelli er 12-unni haldið frá hefðarfólki. Hægt var að kaupa sex bjóra í einu á Torsvelli og fékk maður þá svona pappadót með til að bera allan varninginn aftur í sætið sitt. Það mátti ekki sullast. Í hálfleik var hægt að skjótast á veitingastaðinn 12.fo eða næla sér í súpu. Fá sér svo meiri færeyskan bjór, sem er frábær. Öll afgreiðsla gekk nokkuð snurðulaust fyrir sig og enginn var áberandi ölvaður. Færeyingar byrjuðu líka að fá sér bjór aðeins fyrr en við. Bjórdrykkja er jú ekki orðin þrítug á Íslandinu góða. Þeir sem vildu ekki bjór löbbuðu bara fram hjá. Sögðu bara nei, takk. Fyrir leik var hægt að kíkja í minjagripabúðina til að kaupa trefla, búninga, húfur og fyndna bjórvettlinga í færeysku litunum. Þó ég sé fegin að fanzone-menningin sé loks komin hingað á Íslandið góða þá verðum við að stíga út úr moldarkofanum. Við sýndum og sönnuðum á EM að við erum einir bestu og skemmtilegustu aðdáendur heims. Það er ekki einu sinni bara mitt mat heldur alþjóðasamfélagsins. Bjóðum upp á innlendan bjór í fanzone. Hættum að vera sveitamenn með rollur. Það er allt í lagi. Það gerist ekki neitt, nema kannski einhver örlítill hávaði á vellinum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Benedikt Bóas Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Flokkur fólksins eða flokkun fólksins? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir Skoðun Hver ætlar að bera ábyrgð á mannslífi? Sævar Þór Jónsson Skoðun Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Er útlegð á innleið? Reyn Alpha Magnúsdóttir Skoðun Skólarnir lokaðir - myglan vinnur Guðmundur Þórir Sigurðsson Skoðun Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 2/3 Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Horfumst í augu Kristín Thoroddsen Skoðun Börn á flótta – nýtt líf, nýtt tungumál og nýtt tækifæri í íslenskum grunnskólum Friðþjófur Helgi Karlsson Skoðun 30 silfurpeningar dýralækna? 125.000 lítrar af blóði tappaðir af 4088 merum (með valdi), af eiðsvörðum dýralæknum, 2023 Ole Anton Bieltvedt Skoðun Lægjum öldurnar Halla Hrund Logadóttir Skoðun
Börn á flótta – nýtt líf, nýtt tungumál og nýtt tækifæri í íslenskum grunnskólum Friðþjófur Helgi Karlsson Skoðun
30 silfurpeningar dýralækna? 125.000 lítrar af blóði tappaðir af 4088 merum (með valdi), af eiðsvörðum dýralæknum, 2023 Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Börn á flótta – nýtt líf, nýtt tungumál og nýtt tækifæri í íslenskum grunnskólum Friðþjófur Helgi Karlsson Skoðun
30 silfurpeningar dýralækna? 125.000 lítrar af blóði tappaðir af 4088 merum (með valdi), af eiðsvörðum dýralæknum, 2023 Ole Anton Bieltvedt Skoðun