Carlsberg semur við íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 14. júní 2017 19:12 Höfuðstöðvar Carlsberg. Vísir/Getty
Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið MainManager skrifaði í byrjun júní undir samning við danska bjórframleiðandann Carlsberg um nýtingu á hugbúnaði fyrirtækisins við rekstur höfuðstöðva og verksmiðja bjórframleiðandans í Kaupmannahöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá MainManager. Þar segir meðal annars að MainManager hafi verið valið til að halda utan um nýja verkferla fyrir fyrirbyggjandi viðhald og tilfallandi viðhaldsverkefni auk þess að nýta rýmisstjórnun MainManager til að halda utan um rekstur á núverandi aðalskrifstofum Carlsberg og vöruhúsum þeirra í Kaupmannahöfn. Í tilkynningunni kemur fram að Finn Chabert, forstöðumaður eignaumsýslu Carlsberg, hafi lýst yfir mikilli ánægju með samninginn. „Að okkar mati er MainManager hugbúnaðurinn besta IWMS-lausnin (Integrated Workplace Management System) á markaðnum fyrir okkur. Megin krafan var sú að innleiðing rafrænna verkferla einfaldaði daglega vinnu okkar auk þess að gera hana markvissari og sveigjanlegri. Við trúum því að MainMananger sé þægilegt í notkun og nái að gera nýju ferlana áþreifanlega og auðskiljanlega fyrir starfsfólk okkar og samstarfsaðila. Til lengri tíma litið höfum við einnig miklar væntingar um hvernig við getum notað okkar eigin gögn og upplýsingar í MainManager til að taka betri ákvarðanir um rekstur og viðhald eignasafnsins okkar. “ MainManager ehf. er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki sem þróar hugbúnaðinn MainManager fyrir skandinavískan markað. Hugbúnaðurinn er notaður við rekstur mannvirkja og stýringu á stoðþjónustu. Höfuðstöðvar MainManager eru á Íslandi en félagið er einnig með dótturfélög í Danmörku og Noregi og samstarfsaðila í Ástralíu og Bretlandi. Meðal viðskiptavina eru norska ríkið, Kaupmannahafnarháskóli, DR byen, Reykjavíkurborg og Isavia.
Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira