Leita að vítaskyttu Íslands fjórða árið í röð Stefán Árni Pálsson skrifar 8. júní 2017 15:30 Frá keppninni fyrir ári.
Á sunnudag fer fram hin árlega vítaspyrnukeppni og verður vítaskytta ársins krýnd. Keppnin er haldin á vegum vefsíðunnar Fótbolti.net en þetta er fjórða árið í röð sem keppnin er haldin. Hún hefst á Eimskipsvellinum (Þróttarvelli) klukkan 16:30 á sunnudag en klukkan 18:45 fer fram landsleikur Íslands og Króatíu í Laugardalnum. Áætlað er að vítakeppninni ljúki tímanlega fyrir landsleikinn. Skráning í keppnina fer fram á Þróttarvelli og hefst hún klukkan 16:00 á sunnudag. Þátttökugjald í vítaspyrnukeppninni er 1000 krónur en allur ágóði rennur í ferð fyrir Vildarbörn Icelandair. Vildabörn Icelandair eru sameiginlegt átak Icelandair og viðskiptavina til stuðnings veikum börnum og fjölskyldum þeirra. Sigurvegarinn í keppninni fær gjafabréf frá Icelandair en um er að ræða flugmiða fyrir tvo til Evrópu. Þá fær sigurvegarinn gjafabréf frá adidas og úr frá 24 Iceland. Þrír efstu þátttakendurnir fá allir bolta frá adidas. Öllum er frjálst að taka þátt í keppninni en í fyrra tóku um það bil 300 manns á öllum aldri þátt. Keppt verður á fjögur mörk til að byrja með til að keppnin gangi hraðar. Þegar nær dregur úrslitum verður síðan keppt á eitt mark. Öflugir markverðir standa vaktina í keppninni en þegar styttist í úrslitastund kemur fyrrum landsliðsmarkvörðurinn Gunnleifur Gunnleifsson í markið. Þannig sitja allir þátttakendurnir í úrslitunum við sama borð.Hér má skoða Facebook-viðburðinn um hópinn.
Mest lesið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira