Oreo brownie, pottabrauð og pestó með sólþurrkuðum tómötum og fetaosti úr eldhúsi Evu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 5. maí 2017 16:45 Þættirnir Í eldhúsi Evu er á dagskrá Stöðvar 2 á miðvikudagskvöldum.
Nýr matreiðsluþáttur með Evu Laufeyju Kjaran Hermannsdóttur fór í loftið á Stöð 2 í gær. Þættirnir heita Í eldhúsi Evu en í þeim eldar Eva girnilega rétti í eldhúsinu heima hjá sér auk þess sem hún heimsækir ýmsa veitinga-og matsölustaði og fer lærir ýmislegt hjá þeim. Í gær töfraði Eva fram oreo brownie, pottabrauð og pestó með sólþurrkuðum tómötum og fetaosti en uppskriftir hennar má sjá hér að neðan. Oreo brownie • 150 g smjör • 250 g súkkulaði t.d. suðusúkkulaði • 200 g sykur • 2 stór egg • 100 g hveiti • 1 tsk vanillusykur • 2 msk kakó • 150 g Oreo kexkökur Aðferð: 1. Hitið ofninn í 170°C (blástur). 2. Bræðið smjör við vægan hita, saxið súkkulaðið og bætið því við smjörið og leyfið því að bráðna í smjörinu. Takið pottinn af hellunni og leyfið súkkulaðiblöndunni að kólna. 3. Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós. Bætið vanillu, hveiti og kakó saman við og hrærið þar til deigið er silkimjúkt. Hellið súkkulaðiblöndunni varlega saman við og hrærið þar til deigið verður silkimjúkt. 4. Hellið deiginu í pappírsklætt form (20x20. Bakið við 180°C í 30 mínútur. Berið fram með þeyttum rjóma og berjum. Pottabrauð • 470 g brauðhveiti • 470 ml volgt vatn • 1 tsk salt • 1/4 tsk þurrgerAðferð: Blandið þurrefnum saman í skál og hrærið vatni saman við. 1. Setjið plastfilmu yfir skálina og geymið við stofuhita í 12 – 24 klst. 2. Hellið deiginu á hveitistráðborð og stráið smá hveiti yfir deigið. 3. Hnoðið deigið rétt aðeins í höndunum og brjótið það saman þannig að það myndi kúlu. 4. Smyrjið ofnpott með olíu og setjið pottinn inn í ofn við 230°C. 5. Takið pottinn út úr ofninum, setjið brauðið í pottinn og inn í ofn í 20 – 25 mínútur. Þegar 20 mínútur eru liðnar takið þið lokið af pottinum og bakið áfram í 10 – 15 mínútur. Pestó með sólþurrkuðum tómötum og fetaosti • 3 dl sólþurrkaðir tómatar• 100 g ristaðar furuhnetur• 1 dl hreinn fetaostur• handfylli basilíka• salt og pipar• 1 msk sítrónusafi• 1 dl ólífuolíaAðferð: Setjið allt í matvinnsluvél eða maukið með töfrasprota. Berið með með ljúffengu pottabrauði.
Eva Laufey Kökur og tertur Súkkulaðikaka Uppskriftir Tengdar fréttir Ógleði olli veseni í upptökum Eva Laufey Kjaran birtist á skjánum í kvöld í nýrri þáttaröð. Eva naut þess í botn að taka upp þættina þó að morgunógleðin hafi sett strik í reikninginn. 4. maí 2017 11:15 Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun
Ógleði olli veseni í upptökum Eva Laufey Kjaran birtist á skjánum í kvöld í nýrri þáttaröð. Eva naut þess í botn að taka upp þættina þó að morgunógleðin hafi sett strik í reikninginn. 4. maí 2017 11:15