Heildarlausnir Kraftvéla 31. janúar 2017 12:30 Viktor Karl Ævarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Kraftvéla. mynd/Anton Brink
KYNNING: Kraftvélar ehf. fer með umboð fjölda heimsþekktra vörumerkja í atvinnutækjum. Viktor Karl Ævarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Kraftvéla, segir bjartsýni ríkja á markaðnum í dag og umtalsverð aukning sé í sölu vinnuvéla á milli ára. Kraftvélar bjóði heildarlausnir í vinnuvélum og atvinnubifreiðum. Höfuðstöðvar Kraftvéla eru að Dalvegi 6-8 í Kópavogi og þjónustustöðvar um allt land. „Þegar kemur að vinnuvélum og atvinnubifreiðum teljum við okkur geta boðið heildarlausnir í gegnum Komatsu vinnuvélar, Iveco atvinnubíla, Sandvik námutæki, Potain byggingakrana, Dynapac valtara og Grove bílkrana. Nýjasta viðbótin okkar í atvinnutækjum eru einmitt Potain og Grove kranar. Kraftvélar ehf. hefur frá fyrsta degi sérhæft sig í innflutningi á Komatsu vinnuvélum og þjónustu við þær. Komatsu vinnuvélar og Iveco atvinnubifreiðar ættu að vera öllum verktökum vel kunnar, enda stór vörumerki með fjölbreytt vöruúrval,“ segir Viktor Karl Ævarsson. „Grove bílkranar eru líklega þekktustu bílkranarnir hér á landi enda mest innfluttu bílkranar á Íslandi frá upphafi skráningar hjá Vinnueftirliti ríkisins. Kranarnir eru fáanlegir með lyftigetu frá 30 tonnum upp í allt að 450 tonn. Potain byggingarkranar ættu að vera öllum byggingaverktökum vel kunnugir, enda vel þekktir og með langa sögu hér á landi. Byggingakranarnir eru fáanlegir í öllum stærðum og gerðum, allt frá 1,3 tonna lyftigetu í sjálfreisandi krana upp í 80 tonna lyftigetu í turnkrönum.“ Hjá Kraftvélum starfa rúmlega 40 manns og eru höfuðstöðvar fyrirtækisins að Dalvegi 6-8 í Kópavogi. Einnig starfrækja Kraftvélar útibú á Akureyri og þá er þjónustuaðila Kraftvéla að finna á Akureyri, Hofsósi, Egilsstöðum og Sauðárkróki. Viktor segir jarðvinnuframkvæmdir aftur komnar á skrið á Íslandi svo um munar. „Markaðurinn fyrir vinuvélar er allur að lifna við. Á milli áranna 2015 og 2016 fór innflutningur nýrra vinnuvéla við jarðvegsframkvæmdir úr 146 vélum í 279 vinnuvélar, það er rétt tæplega tvöföldun á milli ára. Við finnum vel fyrir þessari aukningu hér innanhúss og erum til dæmis að þrefalda sölu beltavéla á milli ára. Á árinu sem leið afgreiddum við einnig töluvert af brjótum og hörpum frá Sandvik, völturum frá Dynapac og nokkra tugi Iveco atvinnubifreiða. Jarðvinnuframkvæmdir eru komnar vel af stað og menn eru almennt bjartsýnir, við erum spenntir fyrir komandi árum.“
Mest lesið Jón segir bull að FBI-kempa hafi óvænt bankað upp á með stefnu Viðskipti innlent Veiðir hrefnu í sumar og selur kjötið á Íslandi Viðskipti innlent Fokdýr dómsmál tjónka ekki við ÁTVR Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Semja við Ístak um gerð mannvirkja fyrir fyrsta vindorkuver landsins Viðskipti innlent Hressilega kaótískir morgnar sem eiga það til að klikka smá Atvinnulíf Starfsfólk truflað á tveggja mínútna fresti Atvinnulíf Pizzur í stað smurbrauðs á nýrri Króníku Viðskipti innlent Gefur eftir í tollastríði við Kína Viðskipti erlent Notendur þurfi að bregðast við vilji þeir ekki að gögn verði notuð Viðskipti erlent Fleiri fréttir Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Vörur gerðar af meisturum fyrir meistara Einn vinsælasti tengiltvinnbíll Íslendinga snýr aftur BYKO opnar nýja og glæsilega timburverslun Ný íbúðabyggð með betri loftgæðum Drægnikvíðastillandi dreki sem byggir á fornri frægð Bein útsending: Stafrænar lausnir í heilbrigðisþjónustu Greiðsluáskorun Lukkuhjól hlaðið vinningum á opnun Raflands Sjá meira