Franski landsliðsþjálfarinn til varnar Paul Pogba Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. október 2016 15:30 Paul Pogba í leiknum á móti Stoke um helgina. Vísir/Getty
Manchester United gerði franska miðjumanninn Paul Pogba að dýrasta knattspyrnumanni sögunnar í sumar en byrjun Pogba á Old Trafford hefur ekki alveg staðið undir væntingum. Didier Deschamps, þjálfari Pogba hjá franska landsliðinu, segir að leikmaðurinn þurfi tíma til að aðlagast hlutunum á nýjum stað. Paul Pogba sýndi styrk sinn í 4-1 sigri á Englandsmeisturum Leicester City á dögunum þar sem hann var valinn maður leiksins en hann klúðraði síðan tveimur úrvalsfærum í jafnteflinu á móti Stoke um helgina. Pogba er nú með franska landsliðinu en framundan eru leikir í undankeppni HM 2018 á móti Búlgaríu og Hollandi. „Hann er búinn að breyta um félag og þarf tíma til að komast í takt við nýju liðsfélagana," segir Didier Deschamps og kallar eftir meiri þolinmæði. Paul Pogba kom til Manchester United frá ítalska liðinu Juventus þar sem hann hjálpaði Juve að vinna ítalska meistaratitilinn fjögur ár í röð. „Fólk býst alltaf við meiru af Pogba. Það er ekki nóg fyrir hann að vera venjulegur. Hann er leikmaður sem við búumst við að búi til mark í hverjum leik en þær væntingarnar eru bara of miklar," sagði Deschamps. „Pogba er samt á góðum stað og hann veit alveg hvað hann vill," sagði Deschamps.
Enski boltinn HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Arsenal jafnaði rúmlega aldargamalt félagsmet Fótbolti Segir Amorim ekki geta gert kraftaverk Fótbolti Liverpool vann risaslaginn Fótbolti Jafnteflin ríkjandi í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Körfubolti Sneypuför danskra til Lundúna Fótbolti Meistararnir lágu á heimavelli Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Fótbolti Fleiri fréttir David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Viðtal Kjartans við Carrick: „Þolinmæðin minni og dómharkan meiri í hverri viku“ Sjáðu glæsilegan einleik Ndiayes og jöfnunarmarkið frá Xhaka Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Yfirburðir Sunderland dugðu ekki til sigurs Telja United mun líklegra til að enda í sjöunda en öðru sæti Rekinn eftir aðeins fimm mánuði í starfi Ósammála um Gyökeres: „Hefðirðu verið ánægður með fjögur mörk?“ Eigandi Forest býður fram aðstoð eftir stunguárásina Gæti tekið við Úlfunum ellefu mánuðum eftir að hafa verið rekinn frá þeim Sjáðu mörkin úr kærkomnum sigri West Ham og tvennu Haalands Van Dijk frábiður sér letilega gagnrýni Rooneys Segir allt tal um leiðinlegan fótbolta hjá Arsenal heimskulegt Guardiola segir að dómararnir hafi verið á móti City í áratug „Örugglega nokkrir Fantasy-þjálfarar ósáttir“ „Haaland er þetta góður“ Annað tap spútnikliðsins kom í Manchester Loksins West Ham-sigur í London Úlfarnir ráku Pereira Engin klipping á næstunni: Miður sín en með augun á 8. desember Vara við því að „töfradrykkur“ Haaland geti valdið matareitrun Liverpool loks á sigurbraut á ný Pedro afgreiddi Tottenham Arsenal með sjö stiga forystu á toppnum Andri Lucas í beinni í Doc Zone: „Við setjum hann í skeytin“ Amad bjargaði stigi fyrir United Andri Lucas var kóngurinn á King Power í dag Liverpool féll síðast þegar liðið tapaði fimm í röð „Ég er ekki Schmeichel í dulargervi“ Arne Slot: „Þetta er síðasta spurningin sem ég átti von á“ Sjá meira