Leitar að ójárnaðri bikkju sem er komin á lífeyri Magnús Guðmundsson skrifar 13. ágúst 2016 13:00 Heiðdís Hólm, Freyja Reynisdóttir, Yu Shuk Pui Bobby og Örnólfur Hlynur en á myndina vantar hest.
Listasumar á Akureyri stendur nú sem hæst og í kvöld kl. 20.30 stendur Heiðdís Hólm Guðmundsdóttir fyrir Umbúðalausu gjörningakvöldi í Deiglunni. Heiðdís segir að styrkur sem hún fékk frá Listasumri Akureyrar hafi gert henni kleift að láta af þessu verða en að það sé líka ákaflega mikið um að vera í listalífinu á Akureyri um þessar mundir. „Ég útskrifaðist úr Myndlistarskólanum núna í vor, er með vinnustofu í Rosenborg þar sem ég hef aðallega verið að mála en svo er ég líka að fást við gjörninga. Við Freyja Reynisdóttir tókum til að mynda þátt í gjörningahátíð í París, en það er líka þannig hérna fyrir norðan að maður er eiginlega allt í öllu þannig og brjálað að gera. Við vorum einmitt að ræða þetta á fundi í gær og þar voru allir dauðþreyttir en það er í raun mikið pláss fyrir fáa listamenn hérna á Akureyri. En það eru allir tilbúnir að hjálpast að og búið að vera ótrúlega gaman í sumar. Mér hefur líka fundist aðsóknin góð og Akureyringar áhugasamir. Við höfum líka fengið að taka mikið pláss. ég tók t.d. þátt í Rót og þar voru viðtökurnar til að mynda frábærar og mikið líf. Gjörningahátíðin A byrjar núna um mánaðamótin í Listasafni og þetta er ákveðin upphitun fyrir hana en smærra í sniðum. Þessu er líka ætlað að vera vettvangur fyrir nýtt fólk og nýjar hugmyndir og að gefa meira rými fyrir tilraunastarfsemi en er kannski að finna á stærri hátíð. Ég fór þá leið með þennan viðburð að bjóða bæði listamönnum sem ég þekki og þekki ekki til þess að koma og taka þátt og gefa þeim algjörlega frjálsar hendur með efnistökin. Einu takmörkin felast í því að þau mega hafa frá einni sekúndu upp að þrjátíu mínútum. Svo koma þau bara fram koll af kolli svona dálítið eins og á ljóðakvöldum. Það eru þrír listamenn sem taka þátt, þau Bobby Pui frá Hong Kong, Örnólfur Hlynur sem er ungur listamaður og skáld og loks Freyja Reynisdóttir myndlistarmaður héðan frá Akureyri. Þetta eru þrír ákaflega ólíkir listamenn og það er skemmtilegt þannig fyrir gestina. Bobby ætlar að taka einhvers konar könnun en hún var með gjörning á opnun Listasumars sem ég missti því miður af. Hún vinnur mikið með kvenleikann og þær hömlur sem hún býr við í Hong Kong og þá sérstaklega í myndlist. Þar er í rauninni allt gert til þess að selja og myndlistin fyrst og fremst söluvara. Örnólfur Hlynur hefur mikið verið að skrifa texta, ljóð og tónlist og ég held að hans gjörningur verði soldið ljóðasprottinn en hann kallast því skemmtilega nafni: Trúir þú á áfengisdjöfulinn? Gjörningur Freyju kallast List og fjallar talsvert um eðli gjörninga. Við erum að reyna að útvega hest til þess að koma fram með henni og það eru margir tilbúnir til þess að hjálpa okkur. Vandinn er að hann þarf að vera ójárnaður til þess að fá að fara inn á gólf og að auki þá þarf hann að vera ljúfur og spakur. Þannig að ég er búin að vera eyða morgninum í að hringja í hestaleigur til þess að reyna að finna einhverja gamla bikkju sem er komin á ellilífeyri. Ef einhver veit um rétta hestinn í hlutverkið þá má viðkomandi endilega láta mig vita. En ef þetta gengur ekki með hrossið þá reynum við að finna aðra lausn. Freyja var með mjög svipaðan gjörning í París, þar ætlaði hún að vera með hænu en fékk ekki leyfi til þess, sem endaði á því að hún var með snigil sem var mjög krúttlegt. Þannig að það verður spennandi að sjá hver eða hvað kemur fram með Freyju í kvöld.”Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 13. ágúst.
Menning Mest lesið Segist hafa gert merka uppgötvun nú þegar hann „nálgast endalok lífs“ síns Lífið 50+: Tómleikatilfinningin þegar börnin fljúga úr hreiðrinu Áskorun Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Lífið samstarf Dóttir De Niro kemur út sem trans Lífið „Þetta er lúmskt skrímsli“ Lífið Rapphljómsveit til rannsóknar hjá hryðjuverkadeildinni Lífið Justin Bieber nýtur sín norður í landi Lífið Gengst við kókaínfíkn sinni Lífið „Heyri allt í einu hversu steikt þetta er orðið“ þegar hún útskýrir veikindin fyrir vinum Menning Michael Bolton með ólæknandi krabbamein Lífið Fleiri fréttir „Heyri allt í einu hversu steikt þetta er orðið“ þegar hún útskýrir veikindin fyrir vinum Íslendingar vekja athygli í menningarlífi Kaupmannahafnar Fimmtíu ára ljósmyndaveisla á sýningu GVA Arngunnur Ýr er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2025 Lóa Hlín, Rán, Mars og Elías Rúni fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Hugmyndin kviknaði í New York þegar eldgos hófst heima Egill Heiðar Anton Pálsson tekur við sem leikhússtjóri Elti konuna sína yfir hálfan hnöttinn Fjöldi fólks á opnun fölsuðu verkanna Mario Vargas Llosa fallinn frá Alls 38 milljónum króna úthlutað úr Myndlistarsjóði Sá stórt tækifæri í fjárfestingarhlið listarinnar Klukkur og kaffibollar í partýi á Prikinu „Mikilvægt að gera hluti sem hann yrði stoltur af“ Fordæmd ást kúrekanna á fjallinu Sjá meira