Alexander Veigar bjargaði stigi fyrir Grindvíkinga Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. júlí 2016 22:36 Grindvíkingar eru áfram í 2. sæti Inkasso-deildarinnar. vísir/eyþór
Grindavík og Huginn skildu jöfn, 2-2, í síðasta leik kvöldsins í Inkasso-deildinni. Leiknum seinkaði talsvert vegna bilunar í fluggagnakerfi í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík. Hann hófst ekki fyrr en klukkan 20:40. Grindvíkingar byrjuðu leikinn betur og á 16. mínútu kom Björn Berg Bryde þeim í forystu. Hún entist þó aðeins í átta mínútur því á 24. mínútu jafnaði Pétur Óskarsson metin með skalla eftir aukaspyrnu Ingólfs Árnasonar. Aftur liðu átta mínútur á milli marka en á 32. mínútu skoraði Jaime Jornet Guijaarro fallegt mark og kom gestunum í 1-2. Grindvíkingar sóttu stíft í seinni hálfleik og þeir fengu vítaspyrnu á 72. mínútu þegar Alexander Veigar Þórarinsson var felldur í teignum. Andri Rúnar Bjarnason tók spyrnuna en Atli Gunnar Guðmundsson varði frá honum. Heimamenn sóttu án afláts síðustu mínúturnar og pressan bar loks árangur á þriðju mínútu uppbótartíma þegar Alexander Veigar skallaði fyrirgjöf Gunnars Þorsteinssonar í netið. Þetta var áttunda mark Alexanders Veigars í sumar en hann er markahæstur í Inkasso-deildinni. Lokatölur 2-2 í hörkuleik. Grindavík er enn í 2. sæti deildarinnar, nú með 25 stig, fjórum stigum á eftir toppliði KA sem tapaði fyrir Haukum í kvöld. Huginn er hins vegar í ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar með 10 stig, fjórum stigum frá öruggu sæti.Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá fótbolta.net og úrslit.net.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Fyrsti sigur Fram í mánuð | Þórsarar í frjálsu falli Þrjú mörk og tvö rauð spjöld litu dagsins ljós þegar Fram og Þór áttust við í Laugardalnum í kvöld. Þetta var fyrsti leikurinn í 13. umferð og höfðu heimamenn betur, 2-1. 27. júlí 2016 20:18 Haukar með fullt hús gegn KA | Mikilvægur sigur HK Fjórum leikjum í 13. umferð Inkasso-deild karla er lokið. 27. júlí 2016 21:43 Mest lesið Ferill Jake Paul í hættu Sport Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Körfubolti „Einhver barnaskapur held ég“ Körfubolti Látinn aðeins 29 ára Körfubolti Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Körfubolti Sjáðu dramatíkina í Kópavoginum og öll mörkin úr Bestu deild kvenna Íslenski boltinn „Gríðarlega stoltur af leikmönnum mínum“ Handbolti Viðar Örn settur í agabann Íslenski boltinn Byrjaði níu leiki en valinn bestur Fótbolti Karlotta hljóp alls 742,6 kílómetra í Búlgaríu Sport Fleiri fréttir „Skagamenn eru bara ennþá að leita að nýju DNA“ Viðar Örn settur í agabann Sjáðu dramatíkina í Kópavoginum og öll mörkin úr Bestu deild kvenna Fjölluðu um aukið hártog: „Þetta er galið og út með þetta“ „Ef Örvar hefði látið sig detta hefði þetta verið víti“ Uppgjörið: Þróttur - Grindavík/Njarðvík 1-2 | Nýliðarnir unnu í Laugardalnum Uppgjörið: Fram - Víkingur 0-1 | Víkingssigur í Reykjavíkurslag „Þetta var vont“ „Get ekki sagt að þetta hafi verið sannfærandi sigur“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 3-2 | Ótrúlegur sigur Blika Þegar Martin Eyjólfsson varð Bjargvætturinn Sjáðu mark Hallgríms frá miðju Umfjöllun: Stjarnan - FH 1-2 | FH hafði betur í fjörugum nágrannaslag Uppgjörið ÍBV - Þór/KA 2-0 | Fullkomin byrjun nýliðanna heldur áfram Uppgjörið: KA - ÍBV 2-0 | Sjálfsmark sökkti gestunum í lok leiks Besta byrjun KR í efstu deild síðan árið 1959 Fullkomin byrjun Þróttara heldur áfram Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Keflavík 1-3 | Nýliðarnir hirtu stigin þrjú gegn Skagamönnum Landsliðskonan sögð löt en svaraði svo með flottum leik Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KR 2-3: Halda áfram að kremja mótherjana eins og skordýr Fylgist ekki með umræðunni um starf sitt: „Maður er samt ekkert vitlaus“ Bragi Karl skoraði í fyrsta sigri Njarðvíkinga Ólafur Ingi hundfúll „Ég er búinn að vera að bíða lengi eftir þessu tækifæri“ Umfjöllun: Breiðablik - FH 3-3 | Sex marka jafntefli í Kópavogi Uppgjörið: Fram - Valur 3-2 | Byström kom inná og skoraði sigurmark í þriðja sigri Fram í röð Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - Þór 6-0 | Nýliðar teknir í kennslustund Hræðileg en sanngjörn úrslit: „Við þurfum að vera aðeins stærri“ „Þá verðum við á góðum stað“ Sjá meira
Fyrsti sigur Fram í mánuð | Þórsarar í frjálsu falli Þrjú mörk og tvö rauð spjöld litu dagsins ljós þegar Fram og Þór áttust við í Laugardalnum í kvöld. Þetta var fyrsti leikurinn í 13. umferð og höfðu heimamenn betur, 2-1. 27. júlí 2016 20:18
Haukar með fullt hús gegn KA | Mikilvægur sigur HK Fjórum leikjum í 13. umferð Inkasso-deild karla er lokið. 27. júlí 2016 21:43