Hugmynd um hljóm sem gæti hafa verið til Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 1. júlí 2016 09:45 Berglind María með lokk. Hún ætlar að flytja verk eftir Karólínu Eiríksdóttur, Þórunni Grétu Sigurðardóttur og sjálfa sig í Þorláksbúð á morgun. Vísir/anton Brink
Lokkur er fantasía um gamalt hljóðfæri sem hefur gengið í endurnýjun lífdaga,“ segir Berglind María Tómasdóttir glaðlega, þar sem hún mundar heimagert hljóðfæri úr gömlum rokk og nýju langspili. „Þetta er sama hugmynd og í hurdy gurdy sem eru þekkt þjóðlagahljóðfæri í Mið-Evrópu og Bandaríkjunum. En í stað boga er hjól í mínu hljóðfæri, sem snýst og strýkur streng. Útkoman er hugmynd um hljóm sem gæti hafa verið til fyrir löngu síðan.“ Berglind María spilar á lokkinn á morgun klukkan 16, á fyrsta degi Sumartónleika í Skálholti, í því umdeilda húsi Þorláksbúð. „Svolítið sniðugt að spila þar á hljóðfæri sem er tilbúningur,“ bendir hún á og kveðst fá góðan gest þangað með gömul hljóðfæri. En hátíðin hefst klukkan 14 með tónleikum Camerata Listaháskóla Íslands undir stjórn Sigurðar Halldórssonar og á sunnudag munu kór og sinfóníetta tónlistardeildar sama skóla flytja efnisskrá með verkum eftir hinn níræða Jón Nordal sem er heiðurstónskáld hátíðarinnar í ár. Sumartónleikar í Skálholti er elsta hátíð sinnar tegundar á Norðurlöndunum og er nú haldin í 42.?sinn. Hún heldur áfram allar helgar í júlí með tónleikum klukkan 14 og 16 þar sem virtir flytjendur koma fram og má nefna hópana Caput, Hljómeyki og Nordic Affect. Einnig barokkbandið Brák sem er skipað ungu kynslóðinni. Að venju er sérstök áhersla lögð á barokk og samtímatónlist og sem fyrr er aðgangur ókeypis en tekið við frjálsum framlögum.
Menning Mest lesið „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Lífið Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Lífið Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður Lífið Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Gagnrýni „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Lífið Hvað veistu um… One Direction? Lífið „Hún er í hljóðverinu núna“ Lífið Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Lífið Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit Lífið Hvað er í gangi á Svalbarða? Lífið Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira