Nýr Ford Edge AWD frumsýndur í Brimborg á laugardaginn Finnur Thorlacius skrifar 23. júní 2016 10:23 Ford Edge.
Brimborg frumsýnir nýjan Ford Edge AWD á laugardaginn milli k. 12 og 16 í sýningarsal Ford að Bíldshöfða 6. Ford Edge er stærsti og öflugasti jeppinn í sínum flokki. Aksturseiginleikarnir eru framúrskarandi, útlitið er kraftmikið og tæknin er fyrsta flokks. Ford Edge er fjórhjóladrifinn, búinn 210 hestafla dísilvél og kemur á 19' tommu Titanium álfelgum. Hann er gríðarlega rúmgóður enda er hann stærsti jeppinn í sínum flokki, rúmir 4,8 metrar. Dráttargetan er mikil eða 2.000 kg og veghæðin er rúmir 20 cm undir lægsta punkt. Meðal staðalbúnaðar í Ford Edge er SYNC II samskiptakerfi með Bluetooth og neyðarhringingu í 112, 8 tommu snertiskjár, íslenskt leiðsögukerfi, bakkmyndavél, veglínuskynjari, umferðaskiltalesari, rafdrifinn afturhleri með skynjara og upphitanleg Quickclear framrúða svo eitthvað sé nefnt. Ford Edge fæst frá 8.390.000 kr.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent