Bjarni Þór: Þetta er allavega stoðsending Smári Jökull Jónsson á Kaplakrikavelli skrifar 16. maí 2016 22:30 vísir/vilhelm
Bjarni Þór Viðarsson átti ágætan leik í liði FH í kvöld og var sáttur með sigurinn gegn Fjölni „Ég er mjög ánægður. Við töpuðum síðasta leik og það er sterkt að koma til baka og vera komnir með 9 stig eftir fjóra leiki. Fjölnir er með frábært lið og það er erfitt að spila á móti þeim og þess vegna mjög gott að ná að klára leikinn með sigri,“ sagði Bjarni Þór í samtali við Vísi. „Við þurftum að laga margt eftir KR leikinn. Það voru aðallega grunnatriðin að vera nálægt mönnunum og svona. Við byrjuðum leikinn af krafti eins og við ætluðum. Við náðum að pressa þá hátt uppi og þeir náðu lítið að halda boltanum sem þeir eru góðir í fái þeir tækifæri til.“ Bjarni átti þátt í fyrra marki FH en skalli hans breytti um stefnu af varnarmanni Fjölnis og endaði í markinu. „Ég væri til í að fá öll mörk skráð á mig. Ég flikkaði boltanum á nærstönginni en ég held að hann hafi farið í varnarmanninn. Ef þetta er ekki markið mitt þá er það allavega stoðsending, það er fínt. Ég talaði aðeins við Ívar dómara í hálfleik og hann ætlaði að skoða þetta. Vonandi gerir hann það,“ sagði Bjarni með bros á vör. FH er með 9 stig eftir fjórar umferðir og mæta sjóðandi heitu liði Stjörnunnar í næstu umferð. „Við erum búnir að taka sex stig af sex hér á heimavelli. En eins og ég sagði þá var þetta ekki besti leikur okkar á útivelli gegn KR í síðustu umferð. Það er erfiður leikur næst í Garðabænum. Stjarnan er búin að bæta sig mikið og styrkja sig. Það verður alvöru leikur hjá tveimur toppliðum,“ sagði Bjarni að lokum.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun, viðtöl, myndir og einkunnir: FH - Fjölnir 2-0 | Öruggur sigur FH í Krikanum | Sjáðu mörkin FH-ingar unnu sinn þriðja sigur í Pepsi-deild karla í kvöld þegar þeir unnu góðan 2-0 sigur á Fjölni. 16. maí 2016 22:15 Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Fleiri fréttir Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Sjá meira
Umfjöllun, viðtöl, myndir og einkunnir: FH - Fjölnir 2-0 | Öruggur sigur FH í Krikanum | Sjáðu mörkin FH-ingar unnu sinn þriðja sigur í Pepsi-deild karla í kvöld þegar þeir unnu góðan 2-0 sigur á Fjölni. 16. maí 2016 22:15